Ofurkraftar í matvæla- og veitingagreinum með aðstoð gervigreindar
Viltu spara dýrmætan tíma daglega í rekstrinum, eldhúsinu eða salnum með aðstoð gervigreindar?
Starfsfólk í matvæla- og veitingagreinum stendur daglega frammi fyrir miklu álagi og fjölbreyttum verkefnum. Auk fagvinnunnar fer oft mikill tími í tölvupósta, skipulag, vaktaplön, gæðaskjöl, eftirfylgni með rýrnun hráefnis, matseðlagerð og annað sem fylgir rekstri og starfsmannamálum. Með gervigreind má einfalda mörg þessara verkefna, spara dýrmætan tíma og skapa meira svigrúm fyrir það sem skiptir mestu máli – fagið sjálft. Flest gervigreindarnámskeið eru mjög almenn. Á þessu námskeiði sleppum við flóknu tæknimáli. Við kennum á mannamáli með raunhæfum dæmum og sýnum þér hvernig gervigreind verður þinn öflugasti aðstoðarmaður í daglegu starfi.
Námskeiðið er í samstarfi við Akademias og byggir á aðferðafræði hinna vinsælu námskeiða Ofurkraftar í starfi en er sérstaklega aðlagað að áskorunum í matvæla- og veitingagreinum.
Dagskrá og uppsetning (4x 3 klukkustundir):
Námskeiðinu er skipt upp í 4 hnitmiðaða hluta. Fyrri tveir tímarnir byggja upp sterkt tæknilæsi (AI Fluency) en í seinni tveimur tímunum mætir fólk beint inn í hagnýtar vinnustofur sem leysa áskoranir þeirra eigin fagstéttar.
HLUTI 1: Almennur inngangur og AI Fluency (Öll fög saman)
- Skipti 1: Gervigreindarlæsi og spurnaforritun
- Aðferðarfræði spurnaforritunar: Lærum grundvallaratriðin í því hvernig á að eiga í gagnvirkum samræðum við gervigreind til að fá réttar og áreiðanlegar niðurstöður.
- Spyrja rétt: Uppbygging á góðu prompti (hlutverk, samhengi og skýr fyrirmæli). Brjótum ísinn með verkefnum eins og fljótlegum og faglegum svörum við TripAdvisor/Google umsögnum og snöggum tölvupóstum til birgja.
- Skipti 2: Almennt vs. sértækt spjall
- Munurinn á tækninni: Farið yfir hvenær á að nota opin spjalltól (ChatGPT, Claude, Gemini) og hvenær á að nýta sértækt spjall eða lokaða þekkingargrunna (t.d. NotebookLM hlaðið inn með gæðahandbókum eða reglugerðum).
- Útkoman er sértækur botti: Sérhver þátttakandi hannar sinn eigin sérsniðna AI-aðstoðarmann (botta) sem er hannaður til að leysa endurtekin verkefni á hans eigin vinnustað.
HLUTI 2: Sérhæfðu fagnámskeiðin (Deep Dive í fagstéttir)
Ef fjöldi í stétt leyfir er hópunum skipt upp, en stéttir með mikla samlegð (eins og bakarar og kjötiðnaðarmenn) keyra saman til að tryggja nægan hóp og faglega dýpt
- Skipti 3: Áskoranir eftir fagstéttum
- Unnið er í hópum eftir starfsstéttum þar sem helstu áskoranir úr þeirra hversdegi eru kortlagðar með hliðsjón af gervigreind.
- Dæmi um áskoranir sem unnið er með:
- Bakarar & Kjötiðnaðarmenn: Handavinna við að endurreikna og skala uppskriftir handvirkt, byrgðar hald, ásamt aðlögun á vinnsluferlum (gerjun, pæklun) út frá hita og rakastigi í salnum.
- Matreiðslumenn: Skapandi matseðlagerð, flóknir kostnaðarútreikningar, byrgðar hald, matarsóun (Zero Waste), matseðlagerð og tímafrek skrif á HACCP skjölum.
- Þjónar: Starfsmannavelta og ör þjálfun nýliða, ásamt söluhvötum, byrgðar haldi, vaktaplönum og textagerð.
- Skipti 4: Lausnir dregnar lengra og virkjaðar
- Valdar áskoranir úr þriðja tíma eru teknar alla leið í framkvæmd.
- Þátttakendur nýta tækifæri gervigreindarinnar til að leysa sínar raunverulegu áskoranir og fara heim með tilbúnar, hagnýtar afurðir (sniðmát, gátlista eða tilbúna verkferla) sem spara tíma strax á næstu vakt.
Aðrar upplýsingar:
- Lengd: Námskeiðið er kennt fyrri vikuna mánudaginn 5. október og þriðjudaginn 6. október og seinni vikuna mánudaginn 12. október og þriðjudaginn 13. október frá 13:00 – 16:00. 4 skipti x 3 klukkustundir (Samtals 12 klst.).
- Námskeiðið er í samstarfi við Akademias og er bæði í boði sem staðnám í Borgartúni 23. 3. hæð eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar)
- Almennt verð: 199.000 kr.
- Verð fyrir félagsfólk Iðunnar: 49.8000 kr.
Takmarkað sætaframboð. Tryggðu þér sæti.