Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað matreiðslumenntuðu starfsfólki og öðrum sem starfa við undirbúning, meðferð eða framreiðslu matvæla, hvort sem er í skólum, leikskólum, mötuneytum, velferðarþjónustu, heilbrigðisstofnunum eða öðrum starfsstöðvum þar sem tekið er tillit til sérþarfa neytenda.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á helstu ofnæmis- og óþolsvöldum, sérfæði og mismunandi næringarþörfum. Áhersla er lögð á örugga meðferð matvæla, lestur innihaldslýsinga og hvernig velja má hentug hráefni til að tryggja bæði öryggi og næringargildi máltíða.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu ofnæmis- og óþolsvalda og hvar þá er að finna
- Matvæli og hráefni sem hægt er að nota í stað algengra ofnæmisvalda
- Sérfæði (t.d. fæði fyrir sykursjúka, vegan- og grænmetisfæði, Kosher og Halal)
- Lestur og túlkun innihaldslýsinga og merkinga matvæla
- Krossmengun og örugg vinnubrögð í eldhúsi
- Norrænar ráðleggingar um næringu og ráðleggingar Embættis landlæknis
- Næringarþarfir ólíkra hópa og hvernig tryggja má jafnvægi í máltíðum fyrir einstaklinga með sérþarfir
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu ofnæmis- og óþolsvalda í matvælum
- Geta lesið og túlkað innihaldslýsingar á öruggan hátt
- Skilja grunnatriði mismunandi sérfæðis og næringarþarfa ólíkra hópa
- Geta valið viðeigandi hráefni og komið í veg fyrir krossmengun
- Stuðla að öruggu, faglegu og næringarríku matarumhverfi
Aðrar upplýsingar:
Kennari á námskeiðinu er:
Fríða Rún Þórðardóttir – næringarfræðingur og sérfræðingur í íþróttanæringu
Fríða Rún Þórðardóttir er næringarfræðingur með áratuga reynslu af næringarráðgjöf, fræðslu og kennslu á sviði heilsu, næringar og íþrótta. Hún lauk BS- og MS-prófi í næringarfræði og næringarráðgjöf frá The University of Georgia í Bandaríkjunum, þar sem hún var jafnframt á íþróttastyrk og keppti fyrir háskólann í langhlaupum og víðavangshlaupum.
Fríða hefur starfað um árabil hjá Landspítalanum þar sem hún hefur sinnt sérfæði og ofnæmisfæði, auk þess að bera ábyrgð á gagnagrunni matvæla. Hún hefur jafnframt kennt námskeið og þróað fræðsluefni á sviði næringar, heilsueflingar og ofnæmismála.
Samhliða störfum sínum hefur Fríða veitt ráðgjöf fyrir einstaklinga, íþróttafólk, fyrirtæki og stofnanir, meðal annars í samstarfi við Landspítala, ÍSÍ, Heilsustöðina og World Class. Sérþekking hennar nær meðal annars til íþróttanæringar, heilsueflingar, næringar starfsfólks, ofnæmis- og sérfæðis og breytinga á lífsstíl til bættrar heilsu og vellíðanar.
Fríða er einnig þekkt fyrir störf sín að fræðslu og útgáfu. Hún er höfundur bókarinnar Góð næring – betri árangur í íþróttum og heilsurækt og hefur skrifað fjölda greina og fræðsluefnis um næringu, heilsu og hreyfingu.
Auk starfsferils síns sem næringarfræðingur hefur Fríða verið ein fremsta langhlaupakona Íslands um árabil og keppti fyrir íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum frá 1989 til 2010. Sú reynsla hefur veitt henni einstaka innsýn í tengsl næringar, árangurs og heilsu.
Fríða hefur einnig gegnt formennsku í Astma- og ofnæmisfélagi Íslands og tekið virkan þátt í fræðslu og hagsmunabaráttu á sviði ofnæmis- og loftgæðamála bæði hérlendis og á vettvangi evrópskra samtaka.