Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan

Verð 21.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 4.300 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.

Þrír heimar viskís – Skotland, Japan og Taívan
Með skoskt viskí sem útgangspunkt bera þátttakendur saman viskí frá Skotlandi, Japan og Taívan og kynnast því hvernig sambærilegar framleiðsluaðferðir geta skilað mjög ólíkum stíl og karakter. Í leiðsagðri samanburðarsmökkun er skoðað hvernig skosk viskíhefð hefur haft áhrif á þróun viskíframleiðslu í Japan og Taívan. Jafnframt er farið yfir hvernig landfræðileg lega, loftslag, þroskun og val á tunnum móta bragð, ilm og sérkenni viskís frá hverju landi. Þátttakendur öðlast aukinn skilning á því sem sameinar og aðgreinir þessar þrjár viskíhefðir og þjálfast í að smakka, lýsa og bera saman ólíkar tegundir viskís. Áhersla er lögð á hagnýta þekkingu sem nýtist meðal annars við að kynna og mæla með viskíi fyrir gesti.

Fyrir hverja:

Barþjóna, framreiðslufólk og annað fagfólk í veitinga- og þjónustugeiranum sem vinnur með eða ráðleggur um sterka drykki. Námskeiðið hentar einnig áhugafólki um viskí sem vill dýpka þekkingu sína og skilning á ólíkum viskíhefðum.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum hagnýtan skilning á því hvernig skosk viskíframleiðsla og hefðir hafa haft áhrif á þróun viskígerðar í Japan og Taívan og hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum móta sérkenni viskís frá hverju landi.

Með samanburðar smökkun þjálfast þátttakendur í að greina, lýsa og bera saman ólíkan viskístíl og nýta þekkinguna við kynningu og ráðleggingar til gesta.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði í framleiðslu og þroskun skosks viskís
  • Hvernig skosk viskíhefð varð fyrirmynd viskíframleiðslu í Japan og Taívan
  • Þróun og sérkenni japansks viskís
  • Þróun og sérkenni viskís frá Taívan
  • Áhrif landafræði og loftslags á þroskun
  • Val á tunnum og áhrif þeirra á bragð og karakter
  • Leiðsagða samanburðarsmökkun á viskíi frá Skotlandi, Japan og Taívan
  • Að greina og lýsa helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Hvernig nýta má þekkingu á viskíi við ráðleggingar og þjónustu við gesti

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Útskýrt grunnatriði í framleiðslu og þroskun viskís
  • Lýst áhrifum skoskrar viskíhefðar á framleiðslu í Japan og Taívan
  • Útskýrt hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum hafa áhrif á karakter viskís
  • Greint helstu líkindi og ólíka eiginleika skosks, japansks og taívansks viskís
  • Metið og lýst helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Borið saman ólíkan viskístíl með markvissri smökkun
  • Mælt með viskíi út frá smekk og óskum gesta
  • Útskýrt grunnatriði í framleiðslu og þroskun viskís
  • Lýst áhrifum skoskrar viskíhefðar á framleiðslu í Japan og Taívan
  • Útskýrt hvernig landafræði, loftslag, þroskun og val á tunnum hafa áhrif á karakter viskís
  • Greint helstu líkindi og ólíka eiginleika skosks, japansks og taívansks viskís
  • Metið og lýst helstu einkennum í ilmi, bragði og karakter
  • Borið saman ólíkan viskístíl með markvissri smökkun
  • Mælt með viskíi út frá smekk og óskum gesta

Aðrar upplýsingar:

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jacek Rudecki. Jacek er sérfræðingur í viskíi og sterkum drykkjum með víðtæka reynslu úr drykkja- og veitingageiranum. Hann býr yfir öflugri alþjóðlegri fagmenntun og sérhæfingu á sviði viskís, sterkra drykkja og eimingar, meðal annars WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling og EBS Instructor Academy.

Hann er stofnandi Áfengisstofnunar, sjálfstæðs fræðslufyrirtækis sem sérhæfir sig í smökkunum, fagþjálfun og fræðslu um viskí og aðra sterka drykki.

Jacek hefur fjölbreytta starfsreynslu úr drykkja- og veitingageiranum, meðal annars við barstjórnun, eimingu, fræðslu og þjónustu.

Á námskeiðinu verða smakkaðar 5 tegundir af Viskíi.

Verð 21.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 4.300 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.

Staðsetning
Hús fagfélaganna- Snæfell, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík

2. október 2026 kl: 14:00 - 16:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Enska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Jacek Rudecki
Kennari
Jacek Rudecki
Áfengis leiðbeinandi og Wiskí sérfræðingur

Jacek er sérfræðingur í áfengi, viskífræðingur með víðtæka alþjóðlega reynslu úr drykkjabransanum. Hann hefur starfað á Íslandi í ýmsum störfum innan veitinga- og þjónustugeirans og starfar nú sem yfirbarþjónn á Vinnustofu Kjarval í Reykjavík.

Jacek hefur lokið fjölmörgum fagleiðum, þar á meðal WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling, og EBS Instructor Academy réttindum.