Hinn fullkomni G&T – Bragð, jafnvægi og sköpun

Verð 21.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 4.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.

Hinn fullkomni G&T – Bragð, jafnvægi og sköpun
Verklegt og lifandi námskeið þar sem kafað er ofan í heim eins vinsælasta drykkjar heims – Gin & Tonic. Þátttakendur kynnast uppruna og þróun þessa klassíska drykkjar og læra hvernig nútímalegar aðferðir hafa mótað ólíkar útfærslur hans. Á námskeiðinu læra þátttakendur að skapa sinn eigin Gin & Tonic með því að vinna með samspil gins, tóniks, jurtakeima og skreytinga. Áhersla er lögð á bragð, jafnvægi og rétta samsetningu til að skapa hinn fullkomna Gin & Tonic.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem vilja öðlast dýpri skilning á Gin & Tonic sem og þeim sem hafa þegar grunnþekkingu en vilja efla færni sína, smakkhæfni og innsýn í mismunandi gin-stíla og framreiðslu drykkjarins.

Objective:

Markmið námskeiðsins er að kynna helstu gin-fjölskyldur og einkenni þeirra, þróa skynræna nálgun að Gin & Tonic og sýna hvernig hlutföll drykkjarins og val á skreytingum sem móta bragð, jafnvægi og heildarupplifun. Þátttakendur eru hvattir til að treysta eigin skynfærum og þróa persónulegan skilning á drykknum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Smökkun á fimm vandlega völdum ginum úr þremur gin-fjölskyldum
  • Muninn á London Dry, Contemporary og Navy Strength ginum
  • Samanburð á ginum innan sama flokks og hvernig stíll mótar bragð
  • Áhrif hlutfalls gins og tóniks á bragð, styrkleika og áferð drykkjarins
  • Notkun hefðbundinna og óhefðbundinna skreytinga og hvernig þau hafa áhrif á heildarupplifun drykkjarins

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta greint á milli helstu gin-stíla
  • Skilja hvernig gin innan sama flokks geta haft ólíka karaktera
  • Geta aðlagað hlutföll gins og tóniks eftir æskilegri bragðupplifun
  • Nota skreytingar á réttann hátt til að styðja við jafnvægi og karakter Gin & Tonic

Aðrar upplýsingar:

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jacek Rudecki. Jacek er sérfræðingur í viskíi og sterkum drykkjum með víðtæka reynslu úr drykkja- og veitingageiranum. Hann býr yfir öflugri alþjóðlegri fagmenntun og sérhæfingu á sviði viskís, sterkra drykkja og eimingar, meðal annars WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling og EBS Instructor Academy.

Hann er stofnandi Áfengisstofnunar, sjálfstæðs fræðslufyrirtækis sem sérhæfir sig í smökkunum, fagþjálfun og fræðslu um viskí og aðra sterka drykki.

Jacek hefur fjölbreytta starfsreynslu úr drykkja- og veitingageiranum, meðal annars við barstjórnun, eimingu, fræðslu og þjónustu.

Verð 21.000 kr.
Verð fyrir félagsmenn 4.000 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk frá sínu stéttarfélagi.

Staðsetning
Hús fagfélaganna- Snæfell, Stórhöfði 29, 110 Reykjavík

30. október 2026 kl: 15:00 - 17:00
Setja í dagatal
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Enska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - [email protected]
Jacek Rudecki
Kennari
Jacek Rudecki
Áfengis leiðbeinandi og Wiskí sérfræðingur

Jacek er sérfræðingur í áfengi, viskífræðingur með víðtæka alþjóðlega reynslu úr drykkjabransanum. Hann hefur starfað á Íslandi í ýmsum störfum innan veitinga- og þjónustugeirans og starfar nú sem yfirbarþjónn á Vinnustofu Kjarval í Reykjavík.

Jacek hefur lokið fjölmörgum fagleiðum, þar á meðal WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling, og EBS Instructor Academy réttindum.