Þitt eigið jólakonfekt

Staðsetning
Eldhús, Hús Fagfélaganna Stórhöfða 29-31, 110 Reykjavík
5. desember 2026 kl: 10:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 44.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 8.500 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Þitt eigið jólakonfekt
Lærðu að búa til þitt eigið jólakonfekt á skemmtilegu og verklegu námskeiði með Ólöfu Ólafsdóttur, konditor. Þátttakendur kynnast mismunandi tegundum súkkulaðis og læra aðferðir við að útbúa konfekt og trufflur fyrir hátíðarnar. Áhersla er lögð á rétta meðhöndlun súkkulaðis, temprun og hjúpun ásamt samsetningu bragða og áferðar. Þátttakendur fá tækifæri til að prófa sig áfram og öðlast grunn til að útfæra sitt eigið konfekt heima.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga á súkkulaði og konfektgerð, hvort sem er til eigin ánægju eða til að útbúa fallegar og bragðgóðar jólagjafir. Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist grunnþekkingu og færni í meðhöndlun súkkulaðis og geti nýtt einfaldar aðferðir til að búa til sitt eigið konfekt.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Mismunandi tegundir súkkulaðis og meðhöndlun þeirra.
  • Temprun súkkulaðis.
  • Gerð og samsetningu mismunandi konfekts.
  • Gerð trufflna.
  • Hjúpun konfekts og frágang.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

Verklegt námskeið þar sem þátttakendur vinna að konfektgerð undir handleiðslu Ólafar. Allt hráefni er á staðnum og innifalið í námskeiðsgjaldi. Þátttakendur taka afraksturinn með sér heim til að njóta yfir hátíðarnar eða gefa öðrum.

Aðrar upplýsingar:

Leiðbeinandi er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti konditor landsins. Ólöf sigraði keppnina um eftirrétt ársins 2021 og var einn af meðlimum í kokkalandsliðinu sem hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í 3 sæti samanlagt á Ólympíuleikunum í matreiðslu í febrúar síðastliðinn.
Ólöf gaf út bókina „Ómótstæðilegir eftirréttir“ árið 2023

Verð 44.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 8.500 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Eldhús, Hús Fagfélaganna Stórhöfða 29-31, 110 Reykjavík
5. desember 2026 kl: 10:00 - 15:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
100% mæting
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Kennari
Ólöf Ólafsdóttir