Listin að gera jólakokteil

Staðsetning
Snæfell. Hús fagfélagan Stórhöfða 29-31, Stórhöfði 29-31, 110 Reykjavík
4. desember 2026 kl: 18:00 - 21:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Verð 48.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 8.500 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Listin að gera jólakokteil
Lærðu að hrista saman jólalega kokteila á skemmtilegu og verklegu námskeiði! Þátttakendur kynnast grunnatriðum kokteilagerðar, læra að skipuleggja kokteilastöð og útbúa þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum kokteilum. Að sjálfsögðu verður smakkað á afrakstrinum og því tilvalið að skilja bílinn eftir heima. Allir þátttakendur fá veglegt kokteilagerðarsett að gjöf til að taka með sér heim og nýta við að útbúa uppáhaldskokteilana sína.

Fyrir hverja:

Alla sem hafa áhuga á kokteilagerð, jafnt byrjendur sem vilja læra grunnatriðin og þá sem hafa einhverja reynslu og vilja skerpa á tækni sinni og framsetningu drykkja.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist þekkingu á grunnatriðum kokteilagerðar og sjálfstraust til að útbúa bragðgóða og fallega framreidda kokteila.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði í uppbyggingu kokteila (hlutföll, bragðjafnvægi og blöndunartækni)
  • Notkun baráhalda og uppsetningu kokteilastöðvar
  • Val á hráefnum, ís, glösum og skrauti
  • Þrjár jólalegar útfærslur á vinsælum klassískum kokteilum
  • Framsetningu, útlit og faglegt viðmót við drykkjagerð

Að loknu námskeiði á nemandi að:

Geta útbúið kokteila eftir uppskrift, beitt helstu grunnaðferðum við blöndun og hristingu og skreytt drykki á fallegan og skapandi hátt – og komið vinum og vandamönnum skemmtilega á óvart í næsta matarboði!

Gott að vita:

Námskeiðið er verklegt og þátttakendur smakka á veigunum. Það er því tilvalið að skilja bílinn eftir heima og láta aðra sjá um aksturinn!

Verð 48.500 kr.
Verð fyrir félagsmenn 8.500 kr.

Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.

Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.

Staðsetning
Snæfell. Hús fagfélagan Stórhöfða 29-31, Stórhöfði 29-31, 110 Reykjavík
4. desember 2026 kl: 18:00 - 21:00
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
Tungumál námskeiðs
Íslenska
Námsmat
Mæting og verkefnavinna
Tengiliður
Sylvía Björk Ólafsdóttir - [email protected]
Kennari
Sigurjón Hjaltason