Copilot í daglegu starfi
Athugið að suma daga er kennt annarsstaðar, sjá dagsetningar fyrir neðan.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hvern
Námskeiðið er ætlað öllum sem nota Microsoft 365 og hafa Copilot með Premium-leyfi.
Markmið
Að þátttakendur öðlist verklega færni í að nota Copilot með skilvirkum hætti í daglegu starfi og læri að nýta möguleika þess sem best.
Á námskeiðinu verður fjallað um
Fyrri hluti – Grunnatriði (2 klst.)
- Hvað Copilot er.
- Hvernig Copilot virkar.
- Hvernig á að byrja að nota Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum.
Seinni hluti – Ítarlegri notkun (3 klst.)
- Ítarlegri aðferðir við notkun Copilot.
- Gagnlegar brellur til að nýta Copilot sem best.
- Verklegar æfingar sem nýtast í daglegri vinnu.
Að loknu námskeiði á nemandi að
- Þekkja hvað Copilot er og hvernig það virkar.
- Geta nýtt Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum.
- Þekkja ítarlegri aðferðir og gagnlegar brellur við notkun Copilot.
Annað
Námskeiðið er 5 klukkustundir og skiptist í tvo hluta, 2 og 3 klukkustundir og er skipulagt og haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands. Áhersla er lögð á verklega þjálfun og þátttakendur vinna á eigin tölvu í gegnum námskeiðið.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Athugið að suma daga er kennt annarsstaðar, sjá dagsetningar fyrir neðan.
Ingvar Ágúst kennir hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og er með langa reynslu af notkun Microsoft 365 verkfæra.