Eigna- og viðhaldsstjórnun
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, verkfræðingum, verkstjórum og sérfræðingum sem bera ábyrgð á viðhaldi, eignastýringu og rekstraröryggi – í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og þjónustueiningum.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist yfirgripsmikla þekkingu og hagnýt verkfæri í nútíma viðhaldsstjórnun og eignastýringu, og verði færir um að bæta árangur viðhaldsstarfa með stefnumótandi hætti.
Lýsing:
Námskeiðið er haldið í samstarfi við EVS – Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands og Idhammar. Það veitir djúpa innsýn í viðhaldsstjórnun með áherslu á evrópska staðla (EN 13306 & EN 17007), bilanagreiningu, eignastýringu og stafrænar lausnir. Kennt er á ensku og námskeiðið samanstendur af þremur hlutum – tveimur staðlotum og einni fjarlotu – með blöndu af fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Þátttakendur fá þekkingarvottorð EFNMS Pass við lok námskeiðs og geta síðar tekið EFNMS-vottunarpróf.
Skipulag námskeiðsins:
- Hluti 1 (2.–3. september, Reykjavík): Grunnstoðir viðhalds, EN staðlar, áreiðanleiki og bilanagreining
- Hluti 2 (16.–17. september, fjarnám): Viðhaldsstefnur, TPM, iðnaður 4.0, kostnaður og upplýsingakerfi
- Hluti 3 (6.–7. október, Reykjavík): Stefnumótun, breytingastjórnun, öryggi og stafrænt viðhald
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt á ensku af sérfræðingum frá Idhammar. Próftaka fyrir EFNMS Certificate er ekki innifalin í námskeiðsgjaldi og verður auglýst sérstaklega.
Hagnýtar upplýsingar:
- Lengd: 48 klst.
- Kennarar: Kennarar frá Idhammar
- Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Vatnagörðum 20 og Zoom (fjarnám)
- Dagskrá:
- 2.–3. september 2025 (staðnám)
- 16.–17. september 2025 (fjarnám)
- 6.–7. október 2025 (staðnám)
- Verð: 490.000 kr.
- Verð fyrir félagsaðila: 340.000 kr.
Stutt áhættugreining:
Námskeiðið felur ekki í sér verklega þátttöku og áhættustig er lágt. Hins vegar snýr efnið að stefnumótandi þáttum sem hafa áhrif á öryggi og nýtingu tækja, rekstraröryggi og langtímahagkvæmni. Skilningur og beiting þeirra verkfæra sem kynnt eru getur haft bein áhrif á áhættustjórnun og árangur í rekstri.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Athugið að suma daga er kennt annarsstaðar, sjá dagsetningar fyrir neðan.