Fusion 360
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem vilja læra að teikna í tölvu með einföldum og aðgengilegum hætti án mikils kostnaðar. Sérstaklega gagnlegt fyrir nemendur og fagfólk í málm- og véltæknigreinum, en nýtist einnig vel þeim sem hafa áhuga á hönnun og vilja færa hugmyndir sínar í teikningar og þrívídd.
Markmið:
Að kenna þátttakendum að nýta Fusion 360 teikniforritið á skilvirkan hátt til að skapa, vista og undirbúa teikningar fyrir þrívíddarprentun. Einnig að veita innsýn í hönnunarferla sem tengjast málm- og vélaiðnaði.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Uppsetningu og skráningu í Fusion 360
- Grunnatriði í þrívíddarteikningu: skissugerð, togun, vörpun, fylki, göt og vinnulínur
- Vistun skráa fyrir þrívíddarprentun
- Gerð vinnuteikninga
- Fjötrun, málmbeygjur og samskeytingu
- Einföld hreyfimyndagerð
- Teikniaðferðir sem nýtast í málmiðnaði
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta sett upp og virkjað Fusion 360 teikniforritið
- Hafa færni í að búa til grunnskissur og umbreyta þeim í þrívíddarlíkön
- Geta vistað og undirbúið teikningar fyrir þrívíddarprentun
- Nýta helstu aðgerðir og eiginleika forritsins við hönnun og samsetningu
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.