CE merkingar byggingavara
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hvern:
Þetta námskeið er fyrir starfsmenn verktakafyrirtækja, iðnmeistara, hönnuði og aðra sem annast val og innkaup á byggingarvörum.
Markmið:
Tilgangur þess að þátttakendur kunni skil á CE merkingum á byggingavörum, reglur um þær og geti hagað innkaupum í samræmi við þær.
Lýsing:
Fjallað er um lög um byggingavörur og kröfur um CE merkingar í þeim og hvað þær merkja. Einnig um samhæfða staðla og gildi þeirra. Ennfremur um um eiginleika byggingavara sem ber að staðfesta þegar samhæfður staðall er ekki fyrir hendi.
Annað:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Þórhallur er blikksmiður, iðnrekstrarfræðingur og iðnaðartæknifræðingur. Hann starfaði við sölu á stáli, málmum og byggingarvörum í 30 ár. Í dag starfar hann við markaðseftirlit með byggingarvörum hjá HMS.