Premiere Pro frá A-Ö
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem vilja læra myndvinnslu í Adobe Premiere Pro frá grunni – og þurfa að kunna skil á stafrænni miðlun í starfi eða eigin verkefnum.
Markmið:
Að þátttakendur öðlist færni til að vinna sjálfstætt með myndbönd í Adobe Premiere Pro – frá innflutningi efnis til klippingar, textasetningar, hljóðvinnslu og útflutnings – með það að markmiði að geta skapað eigið efni til birtingar í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
• Grunnatriði í viðmóti og uppsetningu Adobe Premiere Pro
• Innflutning og skipulagningu myndefnis og hljóðs
• Klippingu, snyrtingu og röðun myndefnis á tímalínu
• Notkun stíla (effects) og litaleiðréttinga
• Texta, titla og hreyfingar (motion graphics)
• Grunnatriði í hljóðvinnslu og samræmingu hljóðs við mynd
• Samspil við önnur Adobe forrit
• Útflutning á fullunnu myndbandi fyrir mismunandi miðla (t.d. vef, samfélagsmiðla, auglýsingar)
Að loknu námskeiði á nemandi að:
• Geta nýtt umbreytingar, texta og áhrif til að styrkja frásögn
• Geta samhæft myndefni, hljóð og grafík í samfellda frásögn
• Geta stillt útflutning fyrir ólíkar miðlunarleiðir (t.d. HD, web, vertical video)
• Geta nýtt vinnuferla til að skipuleggja og halda utan um verkefni
• Geta unnið sjálfstætt í Adobe Premiere Pro og klippt einfalt myndband
Aðrar upplýsingar:
Nemendur þurfa að hafa aðgang að Adobe Premiere Pro til að geta tekið þátt í námskeiðinu.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.