Styrkflokkun á timbri skv. ÍST INSTA 142:2009
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir húsasmiði og húsgagnasmiði og aðra sem vinna með timbur.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er annars vegar að nemendur læri hvernig á að styrkflokka timbur samkvæmt staðlinum ÍST INSTA 142:2009 og velja á timbur í réttum gæðum fyrir tiltekna notkun og hins vegar að hvernig umgangast á timbrið og verja það gegn veðrun.
Í námskeiðinu verður fjallað um:
- Viðarfræði.
- Timbur unnið úr barrviði og hvernig það er notað í byggingum.
- Hvernig timbur er valið og varðveitt.
- Hvaða kröfur er gerðar til gæða timburs út frá notkun og byggingarhlutum.
- Aðferðir til að meta gæði timburs.
- Útlitsflokkun timburs og hvað stýrir henni fyrir byggingartimbur
- Vélflokkun timburs
- Hvernig efnisgallar eru metnir og áhrif þeirra á gæðaflokkun.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta lagt mat á gæði timburs.
- Styrkflokkað timbur samkvæmt ÍST INSTA 142:2009
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Í verklegum hluta munu nemendur læra að beita flokkunartöflum til að ákvarða gæði timburs og raða því í flokka fyrir burðarvið eða byggingartimbur. Að loknum verklegum hluta taka þátttakendur próf. Standist þeir það teljast þeir hæfir til að flokka timbur samkvæmt ÍST INSTA 142:2009.
Verklegur hluti námskeiðsins og próf eru haldin tvisvar á ári, í apríl og desember.
Félagsfólk Iðunnar fær að jafnaði 80% afslátt af námskeiðum, eða að hámarki 150.000 kr.
Þeir sem eru ekki félagsmenn gætu átt rétt á styrk úr fræðslusjóði síns stéttarfélags.