Fyrirtækjaþjónusta

Við vinnum með fyrirtækjum að því að efla hæfni félagsfólks og bjóða upp á markvissa sí- og endurmenntun.

Ráðgjöf og fræðslugreining

Við bjóðum fyrirtækjum upp á ráðgjöf leiðtoga faggreinanna. Við komum í heimsókn og kynnum okkur starfsemi fyrirtækisins, áskoranir og tækifæri. Markmiðið er að greina fræðsluþarfir og finna leiðir til að styrkja þekkingu og færni starfsfólks.

Í heimsóknunum er meðal annars farið yfir:

  • Námsframboð Iðunnar
  • Möguleikann á sérsniðnum fyrirtækjanámskeiðum
  • Óskir um fræðslu og greiningu á þörfum
  • Raunfærnimat
  • Tækifæri með Erasmus samstarfi

Náms- og starfsráðgjafar koma með leiðtogum í heimsóknir þegar þörf er á kynningu og fræðslu um raunfærnimat. Þeir eru einnig leiðtogum innan handar við fræðslugreiningar í fyrirtækjum.

Ráðgjöf og fræðslugreining

Þú þekkir starfsfólkið þitt og við þekkjum fræðsluna

Hægt er að óska sérstaklega eftir heimsókn í fyrirtæki og ráðgjöf um fræðslu til starfsfólks. 

Óska eftir ráðgjöf

Fræðslustyrkir

Fyrirtæki sem greiða endurmenntunargjöld til Iðunnar og eru í skilum eiga rétt á að sækja um fræðslustyrki vegna náms og fræðslu starfsmanna. Þá á félagsfólk rétt á ferðastyrkjum vegna námskeiða sem þeir sækja.  

Styrkir | Áttin.is | Fræðslustjóri að láni | ferðastyrkir vegna námskeiða. 

Fræðslustjóri að láni

Með fræðslustjóra að láni getur þú komið fræðslumálum hjá þínu starfsfólki í markvissan farveg. Eins og nafnið gefur til kynna fá fyrirtæki fræðslustjóra/ráðgjafa að láni sem er sérhæfður í fræðslu á vinnustað. Ráðgjafinn gerir greiningu á fræðsluþörfum starfsfólks í samvinnu við stjórnendur sem og starfsfólk. Út frá greiningunni er unnin fræðsluáætlun sem leggur grunn að markvissri símenntun starfsmanna.

Þau fyrirtæki sem greiða starfsmenntaiðgjöld í Iðuna fræðslusetur geta fengið styrk fyrir fræðslustjóra að láni.

Óski fyrirtæki eftir að fá fræðslustjóra að láni skerðir greiðsluþátttaka í því rétt fyrirtækja til fræðslustyrkja til samræmis við þá hámarksupphæð sem fyrirtækið getur sótt um.

Umsókn

Fyrirtæki geta sótt um styrk til Iðunnar ein og sér eða í samvinnu við önnur fyrirtæki, fræðsluaðila og/eða stéttarfélög sem aðild eiga að Iðunni, í gegnum vefinn attin.is.