Erasmus+ og aðrir styrkir
Erasmus+
Iðnnemar, nýsveinar, leiðbeinendur og nefndarfólk hjá Iðunni eiga þess kost að sækja um Erasmus+ styrk til námsdvalar í öðru Evrópulandi. Iðan tekur þátt í fjölmörgun alþjóðlegum verkefnum og er Erasmus+ eitt af þeim. Markmiðið með námsdvöl í öðru landi er að kynnast betur sínu fagi í alþjóðlegu samhengi og veita innsýn í líf og störf fólks í útlöndum.
Ferðastyrkir til félagsmanna vegna námskeiða
Iðan fræðslusetur veitir styrki vegna ferðakostnaðar til félagsfólks á landsbyggðinni til að sækja námskeið.
Fyrirtækjastyrkir í samstarfi við Áttina
Fyrirtæki geta sótt um styrk til Iðunnar ein og sér eða í samvinnu við önnur fyrirtæki, fræðsluaðila og/eða stéttarfélög sem aðild eiga að Iðunni, í gegnum vefinn attin.is
Ráðgjöf og fræðslugreining
Innan Iðunnar starfa leiðtogar fagreinanna og náms- og starfsráðgjafar að fræðslugreiningu fyrir fyrirtæki. Hægt er að óska sérstaklega eftir heimsókn í fyrirtæki og ráðgjöf um fræðslu til starfsfólks.
Fræðslusjóður matvæla -og veitingagreina
Félagsfólk fær styrki til náms samkvæmt reglum Matvís um úthlutun endurmenntunar- og námsstyrkja. Félagsfólk á rétt á námsskeiðsstyrk sem nemur allt að 40% námskeiðsgjalds en aldrei hærri upphæð en 75.000 kr. á ári. Sækja þarf um á Mínum síðum inni á heimasíðu Matís.
Fræðslusjóður prent- og miðlunargreina
Félagsfólk í prentgreinum fær styrki til náms úr fræðslusjóði prent- og miðlunargreina. Rétt á styrkjum eiga þeir félagsmenn sem eiga aðild að GRAFÍU og starfa í prent – og auglýsingaiðnaði í samræmi við kjarasamninga SA og SÍA við Grafíu.
Sótt er um styrki úr fræðslusjóðnum á mínum síðum á Rafis.is.
Umsókn um námsstyrk vegna aukinna ökuréttinda
Félagsfólk sem greitt er af í endurmenntunarsjóði Iðunnar geta sótt um styrki vegna náms til aukinna ökuréttinda. Viðkomandi þarf að færa rök fyrir umsókn sinni en skilyrði fyrir veitingu styrks er að aukin ökuréttindi tengist starfi á fagsviði viðkomandi starfsmanns.