Sigurjón Ólafsson hjá Fúnksjón ræðir um kaup á hugbúnaði á leyfum. Hann er viss um að þið eigið meiri pening en þið haldið! Hugbúnaðarfyrirtæki stjórna gjarnan för í hugbúnaðarmálum. Fyrirtæki eiga erfitt með að meta eigin þörf og hafa litla yfirsýn yfir kaup á hugbúnaði og leyfum. Þar getur leynst verulegur sparnaður.
Fyrirlesturinn er hluti fyrirlestrarraðar um málefni sem snerta stafræna og grafíska miðlun. Léttar veitingar í boði.
Athugið að viðburðinum verður einnig streymt.
Sigurjón Ólafsson eigandi ráðgjafastofunnar Funksjón deilir reynslu sinni í röð hádegisfyrirlestra um vefmál sem á erindi við alla þá sem starfa við stafræna grafíska miðlun og hönnun.