Fréttir
08. september 2026

Fyrirtæki studd til góðra verka

Fyrirtæki studd til góðra verka
Aftast, frá vinstri Harpa B. Guðfinnsdóttir, Anne Rjasanowska, Andreas Gabriel, Minna Uusi-Simola, Susanne Klimmer. Frá vinstri, fremri röð Sabine Weger, Pirita Nieme, Helen Gray, Inga Birna Antonsdóttir, Mélanie Gauthy, Eudes Bastid.

Dagana 2.–3. september kom samráðshópur EQAMOB (European Quality Network for Vocational Mobility) saman til fundar hjá Iðunni fræðslusetri. Unnið var að stuðningi til fyrirtækja sem taka á móti nemum og nýútskrifuðu fagfólki.

Í samráðshópnum situr fjölbreyttur hópur evrópskra sérfræðinga auk fagaðila í náms- og starfsþjálfun, markaðsmálum og samskiptum.

Unnið var að mótun heimasíðu og ásýndar EQAMOB verkefnisins. Þá var lagður grunnur að verkferlum fyrir viðurkenningar til fyrirtækja sem taka þátt í alþjóðlegum náms- og starfsmannaskiptum.

Helstu afurðir EQAMOB verkefnisins verða örnámskeið sem hafa það að markmiði að styðja við fyrirtæki sem taka þátt í náms- og starfsþjálfunarverkefnum Erasmus+.

Þá verða einnig þróaðar gæðaviðurkenningar til fyrirmyndarfyrirtækja sem standa vel að náms- og starfsþjálfun.

„Vinnudagarnir einkenndust af öflugu samstarfi og líflegum umræðum þar sem mikilvæg skref voru tekin í áframhaldandi þróun verkefnisins,“ segir Helen Gray leiðtogi alþjóðamála hjá Iðunni fræðslusetri.

Mikil verðmæti fyrir fyrirtæki

„Fyrirtæki gegna lykilhlutverki í alþjóðlegum náms- og þjálfunarverkefnum. Þátttaka getur jafnframt skapað verðmæti fyrir fyrirtækin sjálf, meðal annars með auknum alþjóðlegum tengslum, nýrri þekkingu inn í vinnustaðinn og tækifærum fyrir starfsfólk til að þróast í starfi,“ segir Helen og segir að með EQAMOB sé markmiðið að gera fyrirtækjum auðveldara að taka vel á móti nemum og nýútskrifuðu fagfólki, veita þeim hagnýt verkfæri og um leið skapa leið til að viðurkenna þau fyrirtæki sem standa sérstaklega vel.

Vefsíða með hagnýtu efni mun fara í loftið strax á nýju ári. Hafið samband ef þið viljið vita meira um EQAMOB. [email protected] og [email protected]

Fleiri fréttir