Þáttur 9 - Í dag þykir fínt að stunda iðnnám
Hvað segir sveinsprófið okkur raunverulega um hæfni? Svanur Karl Grétarsson, formaður sveinsprófsnefndar í húsasmíði ræðir við Bergþór Inga um námið, vinnustaðanám, sveinspróf og leiðina frá nema yfir í fagmann.
„Við reynum í sveinsprófi að láta reyna á aðalatriðin sem allir þurfa að hafa á hreinu,“ segir Svanur og segir mikinn fjölda taka prófið á hverju ári. „Þetta er samræmt próf og er tekið á sama tíma um land allt. Allir spreyta sig á sömu verkefnum,“ segir Svanur og segir mikinn áhuga á náminu. Núna sé eftirsótt að stunda iðnnám og það segir Svanur vera töluverða breytingu frá því sem áður var.
Afrek að ná sveinsprófi
„Þetta þótti ekki fínt, það var ekki eins flott og viðskiptafræði og lögfræði. Í dag er þetta hörkunám og aukin virðing fyrir náminu,“ segir Svanur og segir fólk skilja betur þýðingu þess að útskrifast með starfsréttindi. Það sé heilmikið afrek að ná sveinsprófi en það tekur hátt í 22 klukkustundir og inniheldur mörg, fjölbreytt verkefni þar sem reynir á hæfni, tímastjórnun og verkþekkingu.
Símenntun mjög mikilvæg í iðnaði
Svanur minnir á að í raun hætti fólk aldrei að læra. Símenntun sé iðnmenntuðum mjög mikilvæg.
„Iðan fræðslusetur er magnað fyrirtæki, stoppistöð fyrir iðnaðarfólk sem vill auka þekkingu sína,“ segir Svanur sem hefur setið í stjórn fyrirtækisins undanfarin ár til að styðja við þá hugmynd að fjölbreytt og góð símenntun sé til staðar fyrir sem flesta. „Við hættum aldrei að læra, það er þróun á markaðnum, það koma ný efni og aðferðir.“
Þeir ræða jafnframt hlutverk meistara, gæði í framkvæmd og hvað þarf að gera til að styrkja iðnnám og byggja upp enn öflugri fagmennsku.