Glæsilegur hópur nýsveina fékk sveinsbréfin sín afhent við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri þann 21. apríl.
Bjart og fallegt veður setti skemmtilegan svip á daginn þegar nýsveinar tóku við sveinsbréfum sínum. Athöfnin var vel sótt, þar sem fjölskyldur og vinir fögnuðu þessum merka áfanga með þeim.
Að þessu sinni var útskrifað úr fjórum iðngreinum;
HúsasmíðiHársnyrtiiðnStálsmíðiVélvirkjun
Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í sveinsprófi. Dagur Orri Þorvaldsson og Heiðar Smári Haraldsson voru hæstir á sveinsprófi í stálsmíði og Ása Lind Aradóttir í hársnyrtiiðn. Allir nýsveinar fengu gjafabréf á námskeið að eigin vali hjá Iðunni fræðslusetri og voru hvattir til að huga að símenntun í faginu.
Við óskum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og bjóðum þá velkomna í hóp fagfólks í iðnaði.