Fréttir
21. október 2026

Hlegið og fagnað á 20 ára afmælisári

Hlegið og fagnað á 20 ára afmælisári

Það var létt yfir aðalfundi Iðunnar fræðsluseturs sem haldinn var 8. október síðastliðinn. Iðan fagnar 20 ára afmæli á árinu og af því tilefni var boðið upp á léttar veitingar og skemmtun. Sóli Hólm gladdi fundargesti með uppistandi.

Aðalfundurinn var kærkomið tækifæri til að fagna þeim tímamótum að Iðan hefur starfað í tvo áratugi. Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, stjórnarformaður Iðunnar, lagði í ávarpi sínu í ársskýrslu setursins áherslu á þann mannauð og þá samheldni sem einkennir starfsemi Iðunnar.

Starfsfólkið stendur upp úr

„Góð lið byggja á ólíkri reynslu, þekkingu og styrkleikum einstaklinganna og ná árangri vegna þess að þau stefna í sömu átt. Þannig upplifi ég Iðuna fræðslusetur eftir viðburðaríkt starfsár,“ sagði Hulda Birna.

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir stjórnarformaður Iðunnar

„Þegar ég horfi yfir starfsárið stendur starfsfólkið upp úr. Iðan býr að framúrskarandi starfsfólki sem fylgist vel með þróun og nýjungum og miðlar nýrri þekkingu til iðnaðarins,“ sagði Hulda Birna og minnti jafnframt á að þótt verkefni Iðunnar séu fjölbreytt sé markmiðið ávallt það sama: að efla færni, hæfni og þekkingu í íslensku atvinnulífi. Þar skipti máli að hlusta á þarfir félagsfólks og fyrirtækja og tryggja að þjónustan taki mið af þeim sem hana nýta.

Fleiri fréttir