Í lok maí heimsótti starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs Skógarafurðir á Austurlandi.Þar er íslenskur viður unninn í byggingatimbur. Ólafur Ástgeirsson leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina ræddi við bræðurna Bjarka og Guðna Jónssyni hjá Skógarafurðum um framleiðsluferlið, þurrkun, vottanir og tækifæri til frekari nýtingar íslenskra skógarafurða í mannvirkjagerð.