Kynjamisrétti í karllægum greinum
51% kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum. Niðurstöður rannsóknar verða kynntar miðvikudaginn 21. október.
Félagsfólk Fagfélaganna: RSÍ, VM, MATVÍS, FFÍ, SVG bjóða til hádegisfundar miðvikudaginn 21. október þar sem skýrsla Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um stöðu kvenna í karlægum greinum verður kynnt.
Hægt að skrá sig á fjarfund og fylgjast með kynningu á niðurstöðum hér.
Launamunur, áreitni og ósanngjörn gagnrýni
Rafiðnaðarsamband Íslands fékk Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins til að rannsaka stöðu kvenna í karllægum greinum innan sambandsins. Rafræn spurningakönnun var lögð var fyrir konur í aðildarfélögum RSÍ og VM. Niðurstöðurnar byggja á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM en heildarþýðið var 949 konur. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á stöðu og reynslu kvenna í karllægum greinum á íslenskum vinnumarkaði.
Niðurstaða rannsóknarinnar er vægast sagt sláandi. 51% kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum.
Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu samkvæmt rannsókninni. Þá hefur rúmlega fjórðungur orðið fyrir einelti á vinnustað.
Niðurstöðurnar byggja á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á stöðu og reynslu kvenna í karllægum greinum á íslenskum vinnumarkaði.
Helstu niðurstöður
- 51% kvenna í karllægum greinum innan RSÍ og VM hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum.
- 66% kvenna höfðu orðið fyrir einhvers konar neikvæðum atvikum eða athugasemdum í vinnu.
- 44% höfðu orðið vitni að einelti eða kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað.
- 27% höfðu örugglega eða líklega orðið fyrir einelti í vinnunni.
- 77% þeirra sem urðu fyrir einelti sögðu gerandann vera vinnufélaga og 46% stjórnanda.
- 39% höfðu upplifað að faglegt mat þeirra væri hundsað.
- 32% höfðu verið særð eða niðurlægð fyrir framan aðra.
- 27% höfðu fengið ósanngjarna gagnrýni á störf sín.
- 27% höfðu upplifað óraunhæfar kröfur um frammistöðu eða vinnutíma.
- 12% höfðu orðið fyrir ógnandi hegðun, hótunum eða ofbeldi á vinnustað.
Fordæma áreiti og grípa til aðgerða
Sambandsstjórnarfundur RSÍ skorar á alla sem starfa í karllægum greinum innan sambandsins að virða kvenkyns samstarfsfólk og fordæma áreiti sem konur verða fyrir.
„Konur eiga rétt á því að vinna sín störf án óeðlilegra athugasemda og áreitis á vinnustað.“