Fréttir
22. október 2026

Oddný keppti á heimsmeistaramóti vínþjóna

Oddný keppti á heimsmeistaramóti vínþjóna

Oddný Ingólfsdóttir var fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti vínþjóna í Lissabon.

Oddný Ingólfsdóttir vínþjónn keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna sem fram fór í Lissabon í Portúgal í október.

Alls tóku 66 keppendur þátt í mótinu, sem haldið var á vegum alþjóðasamtaka vínþjóna, ASI. Þar komu saman framúrskarandi vínþjónar víðs vegar að úr heiminum til að reyna á þekkingu sína, færni og fagmennsku við krefjandi aðstæður.

Keppendur þurfa að sýna yfirgripsmikla þekkingu á vínfræðum, standast blindsmökkun, veita faglega ráðgjöf og sýna framúrskarandi hæfni í framreiðslu. Þá reynir á færni í samskiptum og getu til að bregðast við óvæntum aðstæðum þar sem upplifun gestsins er ávallt í fyrirrúmi.

Á heimsmeistaramóti vínþjóna reynir meðal annars á næmt bragð- og lyktarskyn, víðtæka fagþekkingu og hæfni til að veita framúrskarandi þjónustu.

Fagmennska sem skapar tækifæri

Oddný lagði mikið á sig fyrir keppnina. Margra klukkustunda þjálfun og æfingar eru að baki og hún stendur eftir með haldgóða reynslu í farteskinu. Iðan fræðslusetur leggur áherslu á að efla fagmennsku og styðja við símenntun í veitinga- og þjónustugreinum en Oddný mun kenna á námskeiðum um vínfræði eftir áramót.

Fleiri fréttir