Hlaðvörp - Vandað til verka
16. október 2026

Þáttur 4 - Votrými eru viðkvæmasti hluti bygginga

Þáttur 4 - Votrými eru viðkvæmasti hluti bygginga
Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar í nýjasta þætti Vandað til verka.

Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar Guðbjörnsson um múrverk með áherslu á votrými og frágang þeirra.

Hvar verða algengustu mistökin, hvað getur farið úrskeiðis og hvað þarf að vera passa svo votrými endist?

Votrými eru einn viðkvæmasti hluti hverrar byggingar, þar mætast hönnun, undirlag, efnisval, rakavarnir, verklag og eftirlit og smáatriðin skipta gríðarlegu máli.

„Það eru allar leiðir færar í dag til að gera böð alveg tipp topp,“ segir Halldór Garðar. „Þess vegna er synd að verið sé að taka í gegn fjölda herbergja á hótelum af því það hefur ekki verið gert almennilega. Baðherbergi er votrými. Allt herbergið!“ leggur hann áherslu á og því þurfi að rakaverja og ganga frá baðherberginu með það í huga.

Fleiri fréttir