Matvælaskólinn í Kópavogi fagnar 30 ára afmæli laugardaginn 5. september. Guðríður Hrund Helgadóttir, skólameistari MK, segir öflugt samstarf, framúrskarandi kennsluaðstöðu og hæft fagfólk hafa einkennt starf skólans í gegnum tíðina.
„Það sem mér finnst standa upp úr er hversu gott samstarf skólinn á við alla hagaðila,“ segir Guðríður Hrund þegar hún lítur yfir 30 ára sögu skólans.
Hún segir jafnframt aðstaðuna til kennslu í matvælagreinum vera fyrsta flokks. „Ég vil meina að hún sé á heimsmælikvarða. Við erum líka svo heppin að hér hafa alltaf starfað ákaflega hæfir kennarar sem eru mjög faglegir og bera hag nemenda sinna fyrir brjósti.“
Skólinn hefur á undanförnum árum þróað námsframboðið til að mæta breyttum þörfum nemenda og atvinnulífs. Þar skiptir meðal annars máli að gera fólki kleift að stunda nám óháð búsetu.
„Nú er til dæmis boðið upp á nám í dreifnámi í ákveðnum greinum til að koma til móts við þá sem búa víðs vegar um landið. Þannig náum við að mennta fleiri matsveina, matartækna og meistara,“ segir Guðríður Hrund.
Hún segir framlag skólans til matvælageirans ekki síst felast í því fagfólki sem þaðan útskrifast.
„Frá skólanum útskrifast fagmenn sem eru eftirsóknarverðir bæði hérlendis og erlendis. Sú fagmennska skiptir sköpum, til dæmis í upplifun ferðamanna sem heimsækja landið.“
Árangurinn sjáist einnig í þeirri grósku sem nú einkennir matvælagreinar hér á landi. „Við sjáum mikla grósku á markaðnum og fagmenntað fólk er að finna í hverju horni.“
Símenntun tekur við af náminu
Undir þetta tekur Steinn Óskar Sigurðsson leiðtogi matvæla- og veitingagreina hjá Iðunni. „Samstarf Iðunnar og skólans er okkur gríðarlega mikilvægt og á stóran þátt í að efla fagmennsku, færni og sýnileika greinanna.Útskrift er ekki endapunktur heldur upphafið að áframhaldandi faglegri þróun. Við sjáum að ungt fagfólk úr MK er duglegt að sækja sér nýja þekkingu og bæta við færni sína. Þar gegnir símenntun mikilvægu hlutverki,“ segir hann og hvetur ungt fólk til að hefja sína símenntun strax.
Arctic Young Chef-keppnin er haldin á laugardag í tengslum við afmælishátíðina. Þar fá ungir matreiðslumenn tækifæri til að spreyta sig og keppa við jafnaldra sína frá öðrum löndum.
Guðríður Hrund segir slíkan vettvang geta haft mikið gildi fyrir unga fagmenn.
„Með keppni sem þessari gefst nemendum tækifæri til að taka sín fyrstu skref í matreiðslukeppni. Það eflir sjálfstraust þeirra og þor.“
Ávinningurinn sé þó ekki eingöngu fólginn í keppninni sjálfri. „Þau læra mikið af því að kynnast keppendum frá öðrum löndum og styrkja þannig tengslanet sitt í stórum heimi matreiðslunnar. Nemendur valdeflast klárlega við að taka þátt í slíkri keppni.“
Iðan fræðslusetur gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að því að efla tengslanet ungs fagfólks í matvæla-og veitingagreinum. Helen Gray leiðtogi alþjóðamála segir samstarfið við MK afar farsælt og gagnist ungu fagfólki vel. „Við höfum unnið með MK í gegnum Erasmus+ áætlunina bæði varðandi náms-og þjálfunarverkefni í matreiðslu, framreiðslu, bakstur og kjötiðn í gegnum árin,“ segir Helen.
Afmælishátíðin fer fram í MK og dagskráin verður ekki öll með hefðbundnu sniði. Meðal þess sem gestir fá að sjá eru keppnir í gúrkuskurði og rófukrullingi.
„Í skólanum starfar mikið af öflugu fagfólki sem fylgist með því sem gerist vítt og breitt um heiminn. Þessar keppnir eru gott dæmi um það og sýna hversu lifandi og skemmtilegar matvælagreinarnar eru,“ segir Guðríður Hrund.
Dagskrá afmælishátíðar þann 5. september í MK