Hlaðvörp
14. febrúar 2022

Gastækni og gaslagnir

Gastækni og gaslagnir

Starfsumhverfi suðumanna þarf að vera þannig útbúið að það skaði ekki heilsu né valdi óþarfa slysum.

Þráinn Sigurðsson framkvæmdastjóri Gastec sérhæfir sig í flestu því sem tengist gasbúnaði, gaslögnum og gasöryggi. Gústaf Adólf Hjaltason, sérfræðingur í málmsuðu, ræddi við Þráinn í nýjasta þætti Augnabliks í iðnaði um starfsumhverfi suðumanna og framþróun í iðnaðinum.

Þráinn telur mikilvægt að notuð séu svokölluð mison-gös í smiðjum sem séu heilnæmari. Það sé aðeins dýrara en skili sér í minni þreytu og þannig meiri afköstum er líða tekur á daginn. Starfsmenn hafi meiri starfsorku allan daginn og gaskostnaður sé frekar lítill í smiðjum þannig að stjórnendur ættu, að hans mati, frekar að velja þann kost. „Gaskostnaður í heildarkostnaði suðu er hvort sem er lítill, kannski tvö til þrjú prósent.“ 

Útsog er annar þáttur sem þarf að vera í góðu lagi, en einnig eru til hjálmar sem eru með yfirþrýsting inni í hjálminum þannig að suðumaðurinn fær hreinsað loft þjappað inn í hjálminn. Þetta er alger bylting að mati Þráins og stórbætir starfsumhverfi suðumanna. „Þetta er í eðli sínu tiltölulega ódýr leið til að bæta starfsumhverfi suðumanns, það er að vera með þessa hjálma,“ segir Þráinn og segir að notkunin á slíkum hjálmum mætti vera meiri og Gústaf tekur undir það. Þráinn segir að best sé að haga útsogi þannig að það sogist niður úr suðuborinu sjálfu eða sé í stillanlegum rana. Hann er ekki eins hrifinn af því að setja útsog fyrir ofan suðumanninn eins og sést á sumum stöðum. Hlífðarbúnaður er einnig mjög mikilvægur til að koma í veg fyrir slys og til að vernda suðumanninn. 

Þráinn telur töluvert rými vera fyrir meiri sjálfvirknivæðingu í málmiðnaði en nú er til staðar. Það myndi skapa ný tækifæri til að framleiða fleiri vörur hér á landi í stað þess að þurfa að leita til aðila erlendis. „Í þessum framleiðslugeirum myndi maður vilja sjá meiri róbótavæðingu en það eru ekki mörg fyrirtæki hér á landi sem eru komin á þann stall,“ segir Þráinn.
Gústaf og Þráinn ræða svo um framtíðina og möguleika á enn frekari tækniþróun í suðuhjálmum til að auðvelda vinnu suðumanna. Í þeim efnum séu möguleikarnir óendanlegir og spennandi. 

Fleiri fréttir