Fréttir
23. september 2026

235 nýsveinar hlutu sveinsbréf í 14 iðngreinum

235 nýsveinar hlutu sveinsbréf í 14 iðngreinum

Sveinsbréf voru afhent við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica 22. september. Alls voru 235 nýsveinar skráðir í 13 iðngreinum.

Afhending sveinsbréfa markar stór tímamót fyrir nýsveina sem hafa lokið bæði námi og starfsþjálfun og staðist sveinspróf í sinni iðngrein. Með sveinsbréfið í höndunum bætist ný kynslóð fagfólks við íslenskt atvinnulíf.

Við athöfnina voru jafnframt veittar viðurkenningar fyrir hæstu einkunn á sveinsprófi í hverri grein.

Iðan fræðslusetur óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í áframhaldandi starfi og starfsþróun í iðngrein sinni.

Sveinsbréfið er ekki aðeins staðfesting á þeirri þekkingu og færni sem nýsveinar hafa tileinkað sér heldur einnig upphafið að nýjum tækifærum til að byggja áfram ofan á fagmennsku sína og reynslu.

Fleiri fréttir