Fréttir
04. nóvember 2026

Fagnað með nýsveinum fyrir norðan

Fagnað með nýsveinum fyrir norðan

Það var ánægjuleg stund við afhendingu sveinsbréfa í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 3. nóvember sl. þegar rúmlega 50 nýsveinar fengu afhent sveinsbréf.

Það var ánægjuleg stund við afhendingu sveinsbréfa í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 3. nóvember sl. þegar rúmlega 50 nýsveinar fengu afhent sveinsbréf.

Afhent voru sveinsbréf í húsasmíði, vélvirkjun, prentsmíði, kjötiðn, hársnyrtiiðn og bifvélavirkjun. Flestir voru nýsveinarnir í húsasmíði.

Afhendingunni stýrði Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs.

Nýsveinar fengu gjafabréf á námskeið frá Iðunni fræðslusetri og þeir sem höfðu sýnt framúrskarandi árangur fengu verðlaun fyrir frammistöðuna frá fagfélagi sínu.

Að lokinni athöfn bauð Iðan nýsveinum og gestum upp á veitingar og myndatöku til að minnast áfangans.

Iðan óskar nýsveinunum til hamingju með áfangann.

Fleiri fréttir