Fréttir
03. nóvember 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Öllum í hag að bregðast við kynjamisrétti í iðnaði

Öllum í hag að bregðast við kynjamisrétti í iðnaði
Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu

Rannsókn á stöðu kvenna í karllægum starfsgreinum dregur upp dökka mynd af starfsumhverfi þar sem kynferðisleg áreitni, einelti og mismunun eru allt of algeng. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, segir niðurstöður rannsóknar á stöðu kvenna í karllægum starfsgreinum sláandi en því miður ekki hafa komið á óvart.

„Þegar maður sér tölurnar og veit hversu mikill sársauki liggur þeim að baki er það auðvitað ömurlegt,“ segir hún en samkvæmt rannsókn Vörðu, sem unnin var að beiðni Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ), höfðu 51% svarenda orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum. Þá höfðu 66% upplifað einhvers konar neikvæð atvik eða athugasemdir í starfi og 27% orðið fyrir einelti, eða töldu líklegt að svo hefði verið.

Rannsóknin byggir á svörum 222 kvenna innan RSÍ og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, en alls voru 949 konur í rannsóknarþýðinu.

Konurnar sjálfar komu rannsókninni af stað

Aðdragandi rannsóknarinnar á rætur að rekja til kvenna innan Rafiðnaðarsambandsins sem höfðu tekið að ræðasaman um starfsaðstæður sínar og sameiginlega reynslu.

„Það var hópur kvenna innan sambandsins sem hafði verið að styrkja tengslin sín á milli og ræða það sem þær voru að upplifa í vinnunni. Í kjölfarið var lögð fram tillaga á miðstjórnarfundi RSÍ um að rannsaka stöðu kvenna innan sambandsins,“ segir Kristín Heba.

Fulltrúar sambandsins leituðu í framhaldinu til Vörðu um aðstoð við rannsóknina.

„Við fórum að kanna hvað væri til af rannsóknum og upplýsingum um reynslu kvenna í þessum greinum og fundum ótrúlega lítið. Við skoðuðum líka erlendar rannsóknir, en þær voru oft afmarkaðar við tilteknar stéttir eða starfsumhverfi. Það er erfitt að hanna rannsókn þegar maður veit svona lítið um reynsluheim þeirra sem á að rannsaka.“

Því var ákveðið að hefja verkefnið með rýnihópum þar sem konurnar gátu lýst eigin reynslu.

„Það reyndist okkur ómetanlegt. Konurnar voru ótrúlega opnar, tilbúnar að segja frá og gefa af sér. Án þeirra hefði einfaldlega ekki verið hægt að ná utan um þetta verkefni.“

Kristín Heba bendir á að störfin innan sambandsins séufjölbreytt. Þar séu ekki eingöngu rafvirkjar eða konur í stóriðju heldur einnig konur sem starfa meðal annars í leikhúsum, kvikmyndaiðnaði og prentiðnaði og miðlun.

„Þegar við höfðum lokið rýnihópavinnunni blasti við okkur að við þyrftum að skoða alla leiðina. Frá því áður en kona ákveður að fara í námið, reynsluna af náminu sjálfu, hvernig gengur að komast á starfssamning og loks hvernig það er að starfa á vinnustað þar sem karlar eru í miklum meirihluta.“

„Ég fer í vinnubrynjuna mína“

Eitt af því sem sat sérstaklega í Kristínu Hebu eftir samtölin við konurnar var hvernig þær lýstu því að þurfa að aðlagast starfsumhverfinu og aftengja sig tilfinningalega til þess að geta sinnt starfi sem þær hefðu mikla ástríðu fyrir.

Hún rifjar upp lýsingu konu sem sagðist fara í ákveðna vinnubrynju áður en hún mætti til vinnu.

„Þegar ég fer í vinnuna er ég ekki eiginkona, móðir eða vinkona. Þá er ég vinnu-ég. Ég klæði mig í vinnubrynjuna mína og fer í vinnuna.“

Kristín Heba segir þessa lýsingu varpa skýru ljósi á þann veruleika sem margar konur búi við.

„Þarna er manneskja sem elskar starfið sitt, hefur metnað, áhuga og ánægju af verkefnunum. En til þess að geta haldið áfram þarf hún að fara í brynju. Þetta er aðferð til að lifa af í starfsumhverfinu..“

Hún segir að í frásögnum kvennanna hafi líka komið fram ýmis annarskonar dæmi um virðingarleysi og útilokun.

„Það getur verið eitthvað áþreifanlegt, eins og að fá afhenta vinnuskó í stærð 43 þegar maður notar stærð 38. En við þetta bætist önnur reynsla sem verður hluti af stærri mynd. Konurnar fá þá tilfinningu að ekki sé tekið tillit til þeirra og að þær tilheyri ekki hópnum. “

Skaðleg menning bitnar á fleirum en konum

Kristín Heba segir mikilvægt að skilja að skaðleg vinnustaðamenning hafi ekki eingöngu áhrif á konur.

„Þessi menning er líka skaðleg fyrir karla sem falla ekki að ríkjandi hugmyndum um hvernig menn eigi að vera. Það getur til dæmis verið ungur maður með litla starfsreynslu eða maður sem er mýkri í samskiptum. Svona menning gefur einfaldlega ekki mikið svigrúm fyrir fjölbreytileika.“

Hún segir niðurstöðurnar sýna að vandinn snúist ekki aðeins um einstök alvarleg atvik heldur einnig samskipti og viðhorf sem hafi fengið að þróast og festast í sessi.

Samkvæmt rannsókninni höfðu 39% svarenda upplifað að faglegt mat þeirra væri hundsað, 32% höfðu verið særðar eða niðurlægðar fyrir framan aðra og 27% höfðu fengið ósanngjarna gagnrýni á störf sín.

„Þetta er flókinn veruleiki sem konurnar lýsa. Þú getur átt góð tengsl við samstarfsmann og kunnað vel við hann en samt upplifað að hann taki þátt í menningu eða samskiptum sem eru særandi eða útilokandi. Þetta er ekki alltaf einfalt eða svarthvítt.“

Atvinnugreinarnar missa dýrmætan mannauð

Hvaða afleiðingar hefur svona starfsumhverfi fyrir konurnar og atvinnugreinarnar sjálfar?

„Áhrif skaðlegs starfsumhverfis á heilsu og líðan fólks eru vel rannsökuð. Þetta tekur mikinn toll af einstaklingum og getur haft langvarandi áhrif á sjálfsmynd, líðan og starfsánægju.“

Hún segir dæmi um að konur hafi yfirgefið greinarnar og vilji ekki snúa aftur. Slíkt brottfall sé þekkt innan Rafiðnaðarsambandsins.

„Þetta er gríðarlegur missir, bæði fyrir einstaklingana og atvinnugreinarnar. Konur hafa lagt tíma og vinnu í að mennta sig og byggja upp starfsferil en sjá sig svo knúnar til að hætta vegna aðstæðna á vinnustað.“

Hún segir nauðsynlegt að horfa á þetta frá fleiri en einu sjónarhorni.

„Fyrir einstaklinginn getur þetta haft djúpstæð áhrif á líðan og sjálfsmynd. Fyrir stéttina þýðir þetta að hún er að missa hæft fólk, reynslu og þekkingu. Það ætti að vera öllum í hag að bregðast við.“

„Hlutirnir lagast ekki af sjálfu sér“

Hvað þarf að gerast til þess að breyta þessari menningu?

„Mér finnst þetta vera skýrt dæmi um að við græðum öll á því að fólk geti valið sér þá starfsgrein sem það hefur áhuga á, óháð kyni. En við verðum að vanda til verka og megum ekki gera ráð fyrir að hlutirnir lagist af sjálfu sér.“

Kristín Heba segir að breytingar á rótgróinni vinnustaðamenningu krefjist markvissrar vinnu,.

„Það er ekki sanngjarnt að ætla þeim fáu konum sem starfa í þessum greinum að axla ábyrgðina á því að breyta menningunni. Við reiðum okkur allt of mikið á þessa íslensku þetta reddast-menningu. En það dugar ekki til þegar verið er að fást við svo rótgróna menningu.“

Ábyrgðin þurfi að vera hjá atvinnugreinunum(/atvinnurekendum), stjórnendum og starfsfólkinu öllu.

„Það þarf að fara markvisst í þetta. Skoða hvað þarf að breytast, hvernig við getum gert það og fylgja breytingunum eftir. Það þarf að vinna þessa vinnu meðvitað.“

„Ég hefði átt að grípa inn í“

Kristín Heba segir viðbrögð karla við kynningum á niðurstöðum rannsóknarinnar hafa verið athyglisverð.

„Við höfum farið víða og kynnt niðurstöðurnar og það hafa margir karlar komið til okkar á eftir og sagt að þeim finnist þetta hræðilegt. Sumir hafa líka rifjað upp aðstæður þar sem þeir hefðu átt að grípa inn í en gerðu það ekki.“

Hún segir slíka sjálfsskoðun mikilvæga en að einnig þurfi að veita fólki verkfæri til þess að bregðast rétt við.

„Stundum lendir fólk í aðstæðum þar sem það veit að eitthvað er rangt á sér stað en finnur ekki réttu orðin eða veit ekki hvernig það á að bregðast við. Kannski þurfum við einfaldlega að þjálfa fólk betur í þessu.“

Hún nefnir að fræðsla geti meðal annars falist í því að æfa viðbrögð við óviðeigandi athugasemdum, áreitni og útilokandi hegðun.

„Við æfum svo margt annað í starfi. Af hverju ekki þetta? Með því að æfa viðbrögðin verða þau smám saman hluti af vöðvaminninu og það verður auðveldara að finna réttu orðin þegar maður stendur frammi fyrir erfiðum aðstæðum.“

Um leið þurfi að nálgast fræðsluna af nærgætni.

„Þetta er rosalega sár reynsla fyrir margar konur og það þarf að sýna henni mikla virðingu. Það má ekki gera ráð fyrir að þær eigi alltaf að vera tilbúnar að segja frá reynslu sinni eða fræða aðra um það sem þær hafa gengið í gegnum.“

„Það er ekki sanngjarnt að ætla þeim fáu konum sem starfa í þessum greinum að axla ábyrgðina á því að breyta menningunni,“ segir Kristín Heba.

Rannsóknin á að leiða til raunverulegra breytinga

Hvað tekur nú við og hvernig verður hægt að meta hvort aðgerðirnar skili árangri?

Kristín Heba segir rannsóknarvinnunni ekki að fullu lokið en síðasti fasi verkefnisins sé enn eftir.

„Við eigum eftir síðasta hlutann af okkar vinnu, sem er önnur rýnihóparannsókn. Við viljum ræða við konunar innan RSÍ um niðurstöðurnar, hvernig þær ríma við þeirra veruleika og hvaða breytingar þær telja raunhæfar og mikilvægar.“

Hún segir Rafiðnaðarsambandið hafa tekið niðurstöðurnar alvarlega og að vinna við viðbrögð og aðgerðir sé þegar hafin.

„Málið hefur verið tekið upp á sambandsþingi og þar er unnið ötullega að því hvernig eigi að bregðast við. RSÍ sé með fjölmargar aðgerðir sem margar hverjar eru nú þegar komnar af stað. Sú eftirfylgni sem RSÍ hyggst fara í sé lykilatriði.“

Slík eftirfylgni sé lykilatriði.

„Það er ekki nóg að gera rannsókn, kynna niðurstöðurnar og halda svo áfram eins og ekkert hafi í skorist. Við þurfum að sjá hvort breytingarnar skila sér í betri reynslu þeirra sem starfa í greinunum.“

Þrátt fyrir alvarlegar niðurstöður segir Kristín Heba verkefnið hafa verið eitt það áhugaverðasta sem hún hafi tekið þátt í.

„Þetta er tímabært og gríðarlega þarft verkefni. Það hefur líka verið með skemmtilegri verkefnum sem ég hef fengið að vinna, ekki síst vegna kvennanna sem við höfum hitt. Þær hafa verið svo opnar, deilt reynslu sinni og haft samband við okkur eftir fundina. Það hefur verið ómetanlegt.“

Fleiri fréttir