Í ár fagnar Iðan 20 ára afmæli, tveimur áratugum af þróun, þekkingu og öflugu samstarfi við fagfólk um allt land. Af því tilefni viljum við þakka félagsfólki okkar fyrir samfylgdina með því að gefa ókeypis vefnámskeið að eigin vali.
Hvort sem þú vilt bæta við þig nýrri færni, dýpka þekkingu eða prófa eitthvað nýtt, þá er þetta tækifæri til að fjárfesta í sjálfum þér, á þínum forsendum.
Við hlökkum til að halda áfram að vaxa með þér næstu 20 árin.
Smelltu hér til að skoða námskeiðin sem í boði eru á vefnum eða njóttu þess að fletta bæklingnum okkar hér fyrir neðan.