Fréttir
27. október 2026

Rætt um framtíð náms og þjálfunar í Evrópu

Rætt um framtíð náms og þjálfunar í Evrópu
Andreas Gabriel, Céline Dorel, Véronique Blain Dugas, Helen Gray, Norbert Ruepert. © Shiran Potié / PotiePhoto

Iðan tók þátt í umræðu um hvernig styðja megi betur við fyrirtæki í alþjóðlegum náms- og þjálfunarverkefnum á alþjóðlegu ráðstefnunni: Towards the European Apprenticeship Area.

Ráðstefnan var haldin í París dagana 14.–15. október undir verndarvæng forseta Frakklands og sett af Jean-Pierre Farandou, vinnu- og samstöðuráðherra. Hún leiddi saman nærri 550 þátttakendur frá 14 Evrópulöndum, þar á meðal fulltrúa stjórnvalda, fyrirtækja og fræðsluaðila. Meginviðfangsefnið var hvernig fjölga mætti tækifærum til náms- og starfsþjálfunar erlendis og auðvelda fyrirtækjum að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.

Helen Gray, leiðtogi alþjóðamála hjá Iðunni fræðslusetri, tók þátt í pallborðsumræðum um viðurkenningu á hæfni sem aflað er í alþjóðlegu námi og starfsþjálfun, gæði námsdvalar og hvernig greiða megi fyrir auknum hreyfanleika í náms- og þjálfunarverkefnum innan Evrópu.

Jean Pierre Farandou vinnu- og samstöðuráðherra Frakklands. © Shiran Potié / PotiePhoto

Mikilvægt að fyrirtæki hafi trausta samtarfsaðila

Í pallborðinu kynnti Helen tvö Erasmus+ samstarfsverkefni sem Iðan tekur þátt í. Annars vegar EQAMOB, sem vinnur að þróun evrópsks gæðamerkis fyrir fyrirtæki sem taka á móti eða senda iðnnema í þjálfun og fræðslu erlendis, og hins vegar MCEU-Hospitality, sem þróaði stutt námskeið og stafrænar örnámsvottanir (e. portable digital micro-credentials) fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu, með áherslu á græna og stafræna færni.

Sérstök áhersla var lögð á lykilhlutverk fyrirtækja við að skapa vandaða umgjörð fyrir náms-og þjálfunarverkefni. Fyrirtæki þurfa skýrar upplýsingar, trausta samstarfsaðila, vel skilgreind náms-og þjálfunarmarkmið og stuðning við undirbúning, framkvæmd og mat á dvölinni. „Hæfni og þekking sem aflað er að vera auðskiljanleg, áreiðanleg og viðurkennd á evrópskum vinnumarkaði,“ segir Helen.

Towards the future of Apprenticeship

Kallað eftir auknu samstarfi í atvinnulífinu

Á ráðstefnunni var jafnframt kynnt sögunar Atvinnurekendaklúbburinn Euro App Mobility á sérstökum hátiðarkvöldverði í boði Öldungarþings Frakka. Klúbburinn tengir saman fyrirtæki, atvinnurekendasamtök og viðskiptaráð. Í sameiginlegri yfirlýsingu ráðstefnunnar er meðal annars kallað eftir auknu samstarfi milli landa, samræmdara regluverki, viðurkenningu á námsárangri hverskonar og auknu Erasmus+ fjármagni.

Fyrirtæki fái stuðning

„Þátttaka Iðunnar í ráðstefnunni undirstrikaði mikilvægi þess að fyrirtæki fái markvissan stuðning til að taka þátt í alþjóðlegum náms- og þjálfunarverkefnum,“ segir Helen en með skýrari umgjörð, öflugum samstarfsnetum og viðurkenningu á hæfni má fjölga tækifærum íslenskra iðnnema, nýsveina og fagfólks til að öðlast alþjóðlega reynslu og um leið styrkja fyrirtæki og íslenskt atvinnulíf.

Helen lagði áherslu á að með öflugum samstarfsnetum sé hægt að fjölga tækifærum íslenskra iðnema.
Fleiri fréttir