Námskeið haustsins eru komin á vefinn.
Fræðsluframboð Iðunnar verður fjölbreytt og spennandi í haust og fjölmörg námskeið og viðburðir komin á vefinn.
„Haustið er mikill annatími hjá okkur,“ segir Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina og nefnir að til viðbótar góðu fræðsluframboði á vefnum bjóði Iðan upp á vandaða fræðsluþjónustu við fyrirtæki sem geti falið í sér sérsniðin námskeið og fræðslu fyrir hópa.
Erlendir sérfræðingar koma til landsins
Fyrir fagfólk í bílgreinum er sérstök áhersla lögð á erlent samstarf í haust. „Við verðum með fjölbreytt námskeiðsframboð með ríka áherslu á samvinnu við öfluga erlenda aðila með það að markmiði að bjóða upp á framúrskarandi fræðslu í takti við þróun bílgreinarinnar.,“ segir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina.
Frá grjóthleðslu til gervigreindar
í bygginga- og mannvirkjagreinum er hægt að velja úr nærri 80 námskeiðum. „Í haust og vetur verða kynntar nýjungar og hægt að kynna sér allt frá grjóthleðslu yfir í nýtingu gervigreindar. Þá verðum við með námskeið sem tekur á ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda,“ segir Ólafur Ástgeirsson leiðtogi greinanna.
Borgar sig ekki að hika
„Það er alltaf rétti tíminn til að sækja sér þekkingu, segir Kristjana Guðbrandsdóttir leiðtogi prent- og miðlunargreina. „Það borgar sig ekki að hika og í þessum geira skiptir máli að vera á tánum, hreyfa sig hratt og sækja sér samkeppnisforskot. Í vetur getur fólk kynnt sér nýjungar í auglýsingaprenti, persónusniðnar lausnir og fengið verklega þjálfun í umbroti og framleiðslu í InDesign.”
Skapandi fagmennska
Steinn Óskar Sigurðsson leiðtogi matreiðslu- og framreiðslugreina tekur undir með Kristjönu að það margborgi sig að þróa áfram sína þekkingu. „Ég býð félagsfólki sem vill sækja fram upp á fjölbreytta fræðslu þar sem við tökum til dæmis fyrir gervigreind og þrívíddarprentun í matreiðslu, nýja tækni og skapandi fagmennsku.“