Sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn
Sveinsbréf voru afhent við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica 17. nóvember . Alls voru 90 nýsveinar skráðir í 9 iðngreinum.
Afhending sveinsbréfa markar stór tímamót fyrir nýsveina sem hafa lokið bæði námi og starfsþjálfun og staðist sveinspróf í sinni iðngrein. Með sveinsbréfið í höndunum bætist ný kynslóð fagfólks við íslenskt atvinnulíf.
Iðan fræðslusetur óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í áframhaldandi starfi og starfsþróun í iðngrein sinni.
Sveinsbréfið er ekki aðeins staðfesting á þeirri þekkingu og færni sem nýsveinar hafa tileinkað sér heldur einnig upphafið að nýjum tækifærum til að byggja áfram ofan á fagmennsku sína og reynslu.
Fleiri fréttir