Bókin áfram sterk í prenti
Persónusniðnar lausnir, virðisaukandi þjónusta til fyrirtækja, meiri áhersla á sjálfvirkni og stafræna prentun. Þetta er vegvísir til vaxtar í prentiðnaði að mati Charles Jarrold framkvæmdastjóra BPIF (British Printing Industries Federation).
Viðtal Charles var bjartsýnn á horfur í prent- og pappírsiðnaði á ráðstefnunni Power of Print sem fór fram í London þann 4.nóvember síðastliðinn. Á ráðstefnunni fór Charles yfir helstu staðreyndir og tölfræðileg gögn um rekstur, áskoranir og tækifæri prentfyrirtækja.
Þrátt fyrir að himinn og haf sé á milli íslensks og bresks prent- og pappírsmarkaðar er áhugavert að kynna sér strauma og stefnur og þá þróun sem er að verða í framboði þjónustu. Áherslur á heimsmarkaði skila sér alltaf hingað til lands þótt að þær verði auðvitað í smærri mynd.
Breskur prent- og pappírsmarkaður er sjá fimmti stærsti í heimi. „Við erum loksins að sjá vöxt aftur eftir tímabil stöðnunar og samdráttar,“ segir Charles og segist merkja aukningu umbúðum, skiltagerð og miðaprentun. Hann varar við því að horfa of mikið í magntölur og segir virðisaukandi þjónustu í prentiðnaði einnig skila meiri ábata.
Hver er þróunin?
„Þróunin til langtíma er að auglýsingaprent er að dragast saman í magni. Bókaprent hefur haldist stöðugt til lengri tíma. Og það er merkilegt því fólk hefur átt von á samdrætti, jafnvel hruni í prentun bóka sem varð aldrei. Dagblaðaprent heldur áfram dragast saman en umbúðir og miðaprentun vex stöðugt og er líklegt til að halda áfram að vaxa.
Magn fyrir utan umbúðir er í heildina að dragast saman í prentiðnaði en verðmæti og gæði þjónustunnar er meira,“ ítrekar Charles.
Breskur iðnaður glímir við hræringar á alþjóðasviðinu. „Við höfum náð að halda prentiðnaðinum opnum þrátt fyrir Brexit,“ en bætti því við að nú hefðu helst áhrif á útflutning miklar hræringar í bandarískum stjórnmálum.
Hann nefnir einnig háan launakostnað sem hefur farið stigvaxandi. Það vandamál sé ekki bundið við prentgreinar.
Hvernig skilar prentiðnaður meiri ábata?
„Með því að taka þátt í tækniþróun og lausnum sem skila viðskiptavinum meira virði,“ segir hann og bendir á lausnir sem Royal Mail hefur þróað í gegnum fyrirtæki sitt Market Reach og felur í sér greiningar fyrir viðskiptavini og snjöllum persónusniðnum lausnum í markpósti. „Í stuttu máli verður meiri ábati með því að búa til meiri virðisaukandi þjónustu,“ segir Charles.
Burðarás í atvinnulífi Bretlands
Hann tekur fram að breskur prentiðnaður sé mikilvægur hluti efnahagslífsins. Veltan er upp á 13,7 milljarða punda, framlag til landsframleiðslu upp á 5,9 milljarða punda og um 93.000 starfsmenn starfa í prentiðnaði í 6.800 fyrirtækjum. „Greinin er einn burðarása í atvinnulífi Bretlands og gegnir sérlega stóru hlutverki á neytendamarkaði“ segir hann.
Hverjar eru helstu áskoranir í breskum prentiðnaði?
„Okkur vantar meira af fagfólki til vinnu,“ segir Charles og segir það með stærstu áskorunum prentiðnaðar næstu misserin en BPIF heldur einnig utan um starfsþjálfun í prentiðnaði.
Þá nefnir Charles að launakostnaður hafi hækkað mikið umfram spár. Nær öll prentfyrirtæki í Bretlandi nefni að launakostnaður og skortur á fagfólki muni standa í vegi fyrir frekari vexti. Við því þurfi að bregðast með meiri áherslu á þjálfun og starfsnám og stuðningi við nýsköpun innan greinarinnar.
Hvers konar þjálfun?
„Með fleiri námskeiðum í stafrænni prentun, sjálfvirkni og í sjálfbærum efnum,“ nefnir Charles og segist stikla á stóru. Það sé hins vegar klárt mál að sjálfbærni sé lykilhæfni auk meiri þekkingar á nýjustu tækni og sjálfvirkni í prentiðnaði.
„Niðurstaðan er að við erum þrátt fyrir allt sterkari en fyrr. Við sem iðnaður sýnum sveigjanleika og ef að við höldum áfram að stunda nýsköpun þá eru spennandi tækifæri framundan.“