Þáttur 8 - Vill ryðja brautina fyrir fleiri konur í iðnaði
Hvað þarf að gerast til að fleiri konur velji iðn- og tæknigreinar? Bergþór Ingi ræðir við Melkorku Maríu Guðmundsdóttir um námið í húsasmíði og hvernig það er að vera kona í iðnaði og þurfa að sanna sig sem slík.
Þegar Melkorka María hóf starfsferil sinn var hún nokkuð smeyk við að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Hún segir að hluti af óörygginu hafi falist í þeirri ábyrgð sem hún upplifði að hvíldi á herðum hennar sem konu í karlægri starfsgrein.
„Ég byrjaði á námssamningi. Ég var svolítið smeyk að stíga mín fyrstu skref á vinnumarkaði og ég held að það hafi verið pressa sem ég setti á sjálfa mig. Hvað ef ég get þetta ekki? Er ég þá að sanna að stelpur eigi ekki heima þarna?“ segir Melkorka.
Ómeðvituð viðhorf geta verið þreytandi
Melkorka segir að hún finni stundum fyrir því að þurfa að sanna sig meira en karlkyns samstarfsfólk. Hún leggur þó áherslu á að slíkt viðhorf sé ekki endilega sprottið af illvilja.
„Já, ekki að það sé viljandi. Það eru engin illindi á bak við það. Það er ómeðvitað og ekki persónulegt,“ segir hún.
Þessi reynsla birtist ekki aðeins á vinnustöðum heldur einnig í hversdagslegum aðstæðum. Hún nefnir sem dæmi þegar iðnaðarmenn koma heim til hennar. Þá geti það gerst að þeir snúi sér að eiginmanni hennar og beini samtalinu til hans í stað þess að ræða beint við hana.
Melkorka segir mikilvægt að konur í slíkum aðstæðum taki pláss og standi með sjálfum sér.
„Maður þarf að vera frekari og taka plássið sitt, maður þarf að stinga bringunni út. Ég á erindi í þetta samtal.“
Hún viðurkennir að það geti verið þreytandi að þurfa ítrekað að minna á sig og stöðu sína. Þegar sömu aðstæður endurtaki sig geti þolinmæðin minnkað.
Að byggja hver aðra upp
Á öllum þeim vinnustöðum sem Melkorka hefur starfað á hefur hún verið eina konan í hópnum. Því hefur félagsskapurinn Félag fagkvenna reynst henni mikilvægur. Félagið er vettvangur fyrir konur og kvár í iðnaði og hefur hún setið í stjórn þess síðustu fimm ár.
„Við erum samfélag og félagsskapur fyrir konur og kvár í sömu stöðu. Við höfum gaman og erum pínu að byggja hver aðra upp,“ segir Melkorka.
Félagið er meðal annars vettvangur þar sem félagskonur geta leitað ráða og stuðnings ef þær verða fyrir óþægilegri reynslu í starfi. Þar er einnig lögð áhersla á samveru og félagslíf, meðal annars með pílu og grillviðburðum.
Mikilvægur þáttur í starfi félagsins er jafnframt að auka sýnileika kvenna í iðnaði og vera fyrirmyndir fyrir yngri kynslóðir.
Melkorka segir að þegar hún var sjálf að alast upp hafi hún sjaldan eða aldrei séð konur í iðngreinum.
„Það er það sem vantaði þegar ég var stelpa. Ég sá aldrei kvenkyns iðnaðarmenn. Ég sá aldrei konu í vinnugalla.“
Með auknum sýnileika vill félagið sýna stelpum á grunnskólaaldri að iðnnám og störf í iðnaði séu raunverulegur valkostur fyrir þær.
Allir þurfa að taka ábyrgð
Að sögn Melkorku eru flestar stúlkur sem velja sér iðnnám í rafvirkjun, þar á eftir koma húsasmíði og pípulagnir.
Hún segir þó að breytingar þurfi að verða á viðhorfum innan iðnaðarins í heild. Það sé ekki nóg að ætlast til þess að konur aðlagist ríkjandi menningu, heldur þurfi allir á vinnustaðnum að taka þátt í að skapa heilbrigt og öruggt starfsumhverfi.
Hún bendir á að ábyrgðin á því að bregðast við óviðeigandi hegðun sé ekki eingöngu hjá þeim sem sýnir hana. Samstarfsfólk þurfi einnig að stíga fram og láta vita þegar mörk eru brotin.
„Ef það er eitt skemmt epli á vinnustaðnum þá þurfa allir hinir að standa upp og segja: Þetta er ekki í lagi. Það er ekki bara þessi eini sem er ekki í lagi. Áreitni er aldrei í lagi.“