Verðmæt reynsla fyrir bæði starfsmann og fyrirtæki
Ingólfur Bjartur Magnússon, bifvélavirki hjá Velti, hélt til Frakklands í maí síðastliðnum þar sem hann fékk tækifæri til starfsreynslu hjá Volvo Truck Center í Chambéry. Ferðin var styrkt af Erasmus+ og skipulögð í samstarfi við Iðuna fræðslusetur.
„Ég vildi prófa eitthvað nýtt, prófa að vinna einhvers staðar annars staðar en á Íslandi,“ segir Ingólfur Bjartur.
Hjá Volvo Truck Center fékk hann innsýn í dagleg störf á frönsku verkstæði, kynntist nýjum samstarfsfélögum og bar saman vinnubrögð og aðstæður við það sem hann þekkti að heiman. Ýmislegt kom honum á óvart.
Markviss starfsþjálfun með Erasmus+
Að baki námsferðinni lá vandaður undirbúningur. Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, og Ingólfur Már Magnússon, þjónustustjóri hjá Velti, fóru áður í undirbúningsheimsókn til Frakklands með styrk frá Erasmus+. Þar kynntu þeir sér aðstæður og lögðu grunn að starfsþjálfun Ingólfs Bjarts.
Sigurður Svavar segir mikilvægt að námsferðir af þessu tagi séu vel skipulagðar og hafi skýran tilgang.
„Það góða við þetta verkefni er að því fylgdi fastmótaður rammi um námsmarkmið,“ segir hann.
Markmiðið er að gefa fagfólki tækifæri til að efla þekkingu sína og færni í raunverulegu starfsumhverfi erlendis, kynnast ólíkum vinnubrögðum og miðla reynslunni áfram þegar heim er komið.
Helen Gray, leiðtogi alþjóðamála hjá Iðunni, segir verkefnið byggja á yfir 20 ára reynslu af námsmanna- og starfsmannaskiptum á vegum Erasmus+.
„Við erum að gefa starfsfólki og félagsmönnum tækifæri til að sækja sér aukna starfsþjálfun og þekkingu erlendis,“ segir Helen.
Fáum miklu meiri fagmann til baka
Ávinningurinn af starfsþjálfun erlendis skilar sér ekki aðeins til einstaklingsins heldur einnig til vinnustaðarins.
Ingólfur Már Magnússon, þjónustustjóri hjá Velti, segir verkefnið hafa verið kærkomið tækifæri til að efla starfsfólk fyrirtækisins.
„Þetta var eins og himnasending þar sem við erum alltaf að leita nýrra leiða til að efla okkar starfsfólk,“ segir Ingólfur Már.
Hann telur reynsluna skila sér beint inn í starfsemi verkstæðisins.
„Ávinningurinn fyrir Velti er að við fáum miklu meiri fagmann til baka, reynslumeiri og veraldarvanari mann, sem skilar sér í betri nýtingu fyrir verkstæðið.“
Meira en bara fagleg þekking
Þótt fagleg starfsþjálfun sé mikilvægur hluti Erasmus+ verkefna er persónulegi ávinningurinn ekki síður dýrmætur.
„Það er þetta faglega sem skiptir máli en líka þetta persónulega. Það er vinskapur, við erum að öðlast betra innsæi og virðingu,“ segir Helen Gray.
Hún bendir á að alþjóðlegt samstarf opni einnig dyr í báðar áttir. Íslenskir fagmenn fá tækifæri til að sækja þekkingu út fyrir landsteinana en um leið skapast möguleikar á að taka á móti erlendu fagfólki hér á landi.
„Fólk fer að skiptast á hugmyndum og það hafa orðið til alls konar verkefni og vinskapur,“ segir Helen og bætir við að þátttakendur öðlist oft nýja sýn á sitt eigið fag.
Sigurður Svavar tekur undir þetta og vill sjá fleiri fyrirtæki nýta sér tækifærin sem felast í Erasmus+.
„Svona verkefni eru rosalega mikilvæg. Við erum að reyna að hvetja fyrirtæki til að taka meiri þátt. Þetta snýst ekki bara um fagmennskuna heldur líka almenna upplifun, að prófa eitthvað nýtt og fara út fyrir sitt þægindasvæði.“