Þáttur 6 - Mistök sem kosta milljónir
Smáatriði í framkvæmd geta orðið að stórum og kostnaðarsömum vandamálum síðar.
Bergþór Ingi ræðir við Ferdinand Hansen um mistök í byggingarframkvæmdum, hvað veldur því að þau verða og hvernig hægt er að koma í veg fyrir þau með betri undirbúningi, fagmennsku og verklagi.
Ferdinand er menntaður í framleiðslufræði en er einnig húsasmiður með meistararéttindi. Hann er sérfræðingur í gæðastjórnun, gluggaframleiðslu og slagregnsprófunum.
Gluggar sem endast í 200 ár – hvað getum við lært?
„Gluggar í gömlum húsum, allt að 200 ára hafa staðist tímans tönn,“ segir Ferdinand og segir að því miður hafi ákveðin þekking á uppsetningu glugga týnst og endingin í nútímahúsum ekki nærri jafn góð.
„Hver byggði öll þessi stóru hús sem eru að mygla? Voru ekki gerð nein mistök?“ Spyr Ferdinand því viðbrögð fagfólks og sér í lagi stærri verktaka verða oft þegar vinnubrögð eru rædd, að fara í vörn.
Ferdinand segir grunnskilninginn vanta. „Það er skortur á skilningi á eðlisfræðinni sem liggur þarna á bak við.“