Fréttir
20. september 2026

Fræðslufundir um viðgerðir eldri húsa alla miðvikudaga í vetur

Fræðslufundir um viðgerðir eldri húsa alla miðvikudaga í vetur

Húsverndarstofa er samstarfsverkefni Iðunnar fræðsluseturs, Minjastofnunar Íslands og Borgarsögusafns Reykjavíkur. Þar geta húseigendur, iðnaðarmenn og annað áhugafólk um húsvernd sótt sér fræðslu og ráðgjöf.

Húsverndarstofa er opin alla miðvikudaga frá kl. 15–17 í Árbæjarsafni og í vetur verður jafnframt boðið upp á fræðslufundi um fjölbreytt viðfangsefni tengd viðhaldi, viðgerðum og verndun húsa.

Fyrsti fræðslufundur vetrarins verður haldinn í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni miðvikudaginn 23. september kl. 17:00. Þar mun Ólafur Halldórsson, einn eigenda húsanna við Þingholtsstræti 26 í Reykjavík og Eyrargötu 16 á Siglufirði, deila reynslu sinni af verndun, viðhaldi og viðgerðum á húsunum.

Áratuga reynsla af endurbótum tveggja húsa

Þingholtsstræti 26 er tvílyft bindingsverkshús með risi og kjallara, reist árið 1903. Húsið hefur staðið nánast óbreytt frá upphafi en frá árinu 1990 hafa farið þar fram töluverðar endurbætur. Á fundinum verður meðal annars fjallað um endurnýjun glugga, hitakerfis og raflagna.

Eyrargata 16 á Siglufirði var reist árið 1929 af Kristni Björnssyni gullsmiði. Húsið á sér merkilega sögu en þar var meðal annars rekið gull- og úrsmíðaverkstæði ásamt verslun. Frá árinu 2005 hefur húsið verið mikið endurnýjað. Ólafur mun meðal annars segja frá endurnýjun glugga og útihurða, hitakerfis og vatnslagna, raflagna og frárennslislagna.

Fræðslufundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Smelltu hér til að skoða Facebook viðburðinn

Fyrir alla sem hafa áhuga á húsvernd

Húsverndarstofa er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Þar er hægt að leita leiðbeininga og fræðslu um viðhald og viðgerðir eldri húsa.

Aðgengi að Árbæjarsafni

Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir á safnið og bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við innganginn.

Næsta stoppistöð strætó heitir Árbæjarsafn og er í um einnar mínútu göngufjarlægð. Stoppistöðvarnar Laxakvísl og Fagribær eru í um 5–6 mínútna göngufjarlægð. Öll bílastæði eru ókeypis.

Fleiri fréttir