Það verður nóg um að vera hjá matvæla- og veitingagreinum Iðunnar í haust og dagskráin spannar allt frá klassísku handverki yfir í nýja tækni.
Þá eru mörg hagnýt námskeið á dagskrá sem styðja við fagfólk í greininni og haustið hefst meðal annars með námskeiðinu; Að fanga augnablikið og er fyrir þá sem vilja bæta myndatökufærni sína og notkun samfélagsmiðla.
Þann 24. september hefst námskeiðið Töfrarnir á bak við Dumplings og fróðlegt námskeið um viskí frá Skotlandi, Japan, Taívan hefst 2. október og þátttakendur njóta kennslu og leiðsagnar Jacek Rudecki sem er sérfræðingur í viský.
„Það er virkilega gaman að kynna nýtt námskeið fyrir félagsfólki um það hvernig gervigreind getur nýst í matvæla- og veitingagreinum,“ segir Steinn Óskar Sigurðsson leiðtogi greinanna. Námskeiðið hefst þann 5. október og er haldið í samstarfi við Akademias.
Í nóvember verður meðal annars boðið upp á Tilraunaeldhúsið – nútíma matargerðarlist 11. nóvember, Meira en salt og límóna – Tequila & Mezcal Masterclass 13. nóvember og Galdurinn á bak við hina fullkomnu Ramen-skál verður haldið 24. nóvember.
Þetta er þó aðeins hluti dagskrárinnar. Einnig verða námskeið í pylsugerð, hnífabrýnslu, úrbeiningu, fiskflökun, ostum, matvælaöryggi, ofnæmi og sérfæði og fleiru.
Nokkur námskeið haustsins eru þegar fullbókuð og önnur farin að fyllast, þannig að áhugasamir eru hvattir til að bíða ekki of lengi með skráningu bendir Steinn Óskar á.
Skoðaðu allt framboðið.
Ert þú félagsmaður?
Veistu hvort þú sért félagsmaður Iðunnar og hvaða réttindi þú hefur?
Félagsfólk Iðunnar njóta ýmissa fríðinda þegar kemur að símenntun og verð námskeiða á vef Iðunnar fela í sér allt að 80% niðurgreiðslu til þess.
„Ný könnun meðal félagsfólks Iðunnar sýnir að að 61% félagsmanna vita að þeir séu félagsmenn en einungis 10% vita að þeir fá allt að 80% afslátt af öllum námskeiðum Iðunnar. Það er því vel þess virði að kanna réttindin og nýta þau,“ segir Steinn Óskar.
Hvað vilt þú læra næst?
Námskeið Iðunnar eiga að endurspegla þarfir fagfólksins í greinunum og því eru hugmyndir að nýjum námskeiðum alltaf vel þegnar.
Ertu með hugmynd að námskeiði sem þig vantar eða sérðu eitthvað nýtt í faginu sem þér finnst að Iðan ætti að taka upp? Láttu okkur vita.