Dagana 12.–17. apríl stóð Iðan fræðslusetur fyrir metnaðarfullum námskeiðum um rafvæðingu eldri bíla í samstarfi við breska fyrirtækið Electric Classic Cars. Til landsins komu Richard „Moggy“ Morgan, stofnandi og eigandi fyrirtækisins, ásamt samstarfsmanni sínum Mike, til að miðla sérþekkingu sinni á sviði rafvæðingar klassískra ökutækja.
Námskeiðin voru haldin með það að markmiði að færa nýjustu þekkingu á þessu sviði til Íslands, efla færni fagfólks og skapa vettvang þar sem ólíkir hópar bílaáhugafólks gætu komið saman. Verkefnið sameinaði áhuga á jeppum, eldri bílum og rafvæðingu samgangna og vakti jafnframt athygli á þeim möguleikum sem felast í því að gefa eldri ökutækjum nýtt líf með nútímatækni.
Electric Classic Cars er meðal þekktustu fyrirtækja heims á sviði rafvæðingar klassískra bíla. Richard „Moggy“ Morgan hefur um árabil verið leiðandi í þróun og framkvæmd umbreytinga eldri bíla yfir í rafdrif. Hann hefur átt, gert upp og keppt á klassískum bílum um áratugaskeið og samhliða því starfað í yfir tuttugu ár innan orkugeirans þar sem hann hefur aðstoðað nokkur af stærstu fyrirtækjum heims við að draga úr kolefnislosun. Þessi einstaka blanda af reynslu úr bílaheiminum og sjálfbærnimálum hefur gert Electric Classic Cars að einum fremsta sérfræðingi heims á sviði rafvæðingar eldri ökutækja.
Fyrstu dagana voru haldin tvö bókleg námskeið sem ætluð voru bæði áhugafólki og fagfólki sem hefur áhuga á umbreytingu eldri bíla í rafbíla. Markmið námskeiðsins var að miðla þeirri þekkingu og reynslu sem safnast hefur hjá Electric Classic Cars á rúmum tíu árum við slíkar breytingar.
Á námskeiðunum var farið yfir alla helstu þætti rafvæðingar bíla, allt frá grunnuppbyggingu rafbíla og vali á íhlutum til hönnunar raflagna, rafhlöðuhúsa, öryggiskerfa og stjórnbúnaðar. Sérstök áhersla var lögð á þætti eins og þyngdardreifingu, burðar- og festipunkta fyrir rafhlöður og rafmótora. Jafnframt var fjallað um hönnun og framleiðslu rafhlöðuhúsa, stýringar, mæla og nýjustu þróun í greininni, meðal annars V2L (Vehicle to Load) tækni og notkun varmadæla í rafbílum.
Að námskeiði loknu höfðu þátttakendur öðlast góðan skilning á þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja rafvæðingu eldri bíla og fengið aukið sjálfstraust til að takast sjálfir á við slík verkefni.
Hápunktur vikunnar var þriggja daga verklegt námskeið þar sem þátttakendur unnu saman að raunverulegu umbreytingarverkefni. Þar var 2007 árgerð af Land Rover Defender á 38 tommu dekkjum, sem áður var í eigu ÍSAK ferðaþjónustu, breytt í rafbíl.
Markmið verklega námskeiðsins var skýrt: að koma fyrir háspennukerfi úr 2023 árgerð Nissan Leaf með 62 kWh rafhlöðu í Defenderinn og keyra bílinn út að námskeiði loknu.
Námskeiðið var ætlað þeim sem hafa góða þekkingu á rafbílum og háspennukerfum og vilja öðlast verklega reynslu af slíkum breytingum. Áhersla var lögð á að sýna hvernig háspennukerfi er komið fyrir í Land Rover Defender og tengt við núverandi aflrás, hvaða búnað þarf til að virkja Nissan Leaf háspennukerfið og hvernig tryggja má örugga framkvæmd verkefnisins.
Þátttakendur fengu jafnframt ítarlega fræðslu um öryggisráðstafanir og rétt vinnubrögð við vinnu með háspennukerfi, auk þess sem farið var yfir hvaða áskoranir og áhættuþætti þarf að hafa í huga við umbreytingu eldri bíla í rafbíla.
Að námskeiðinu loknu höfðu þátttakendur öðlast haldbæra þekkingu á þeim skrefum sem þarf að taka til að breyta eldri bíl í rafbíl, aukið hæfni sína til að vinna með öruggum hætti við háspennukerfi og fengið reynslu af uppsetningu fyrirfram hannaðra lausna fyrir rafvæðingu eldri ökutækja, svokallaðra „EV conversion kit“.
Verklega námskeiðið snerist ekki aðeins um að sýna tæknina á bak við umbreytinguna heldur einnig að framkvæma hana í raun. Markmiðið var að ljúka uppsetningu rafkerfisins og gera bílinn aksturshæfan áður en námskeiðinu lyki.
Það markmið náðist og var Land Rover Defenderinn gangsettur og prufukeyrður með góðum árangri að námskeiði loknu. Verkefnið sýndi með skýrum hætti hvernig hægt er að endurnýta eldri ökutæki og gefa þeim nýtt líf með nútímatækni í stað þess að leggja þau af.
Næstu skref felast í áframhaldandi prófunum á bílnum við íslenskar aðstæður. Reynslan af verkefninu mun veita mikilvægar upplýsingar um möguleika rafvæddra jeppa í íslenskri ferðaþjónustu og við krefjandi akstursskilyrði þar sem áreiðanleiki og drægni skipta miklu máli.
Mikil ánægja var meðal þátttakenda með námskeiðin og samstarfið við Electric Classic Cars. Verkefnið sýndi vel hvernig hægt er að sameina klassíska bíla, sérútbúna jeppa og nýjustu tækni rafbílavæðingar með sjálfbærni, nýsköpun og endurnýtingu að leiðarljósi.
Námskeiðin eru hluti af aukinni áherslu Iðunnar á fræðslu um nýja tækni í bílgreinum og undirstrika mikilvægi þess að íslenskt fagfólk hafi aðgang að sérhæfðri þekkingu á sviði rafvæðingar samgangna. Með samstarfi við leiðandi sérfræðinga á heimsvísu gefst einstakt tækifæri til að sækja nýja þekkingu til útlanda og færa hana inn í íslenskt starfsumhverfi.
Jafnframt sýndu námskeiðin hvernig rafvæðing eldri bíla getur skapað ný tækifæri fyrir bílageirann og stuðlað að aukinni sjálfbærni með því að lengja líftíma ökutækja sem annars gætu horfið úr notkun.