Fréttir
18. september 2026

Hafðu áhrif – Iðan á ferð um Suðurland

Hafðu áhrif – Iðan á ferð um Suðurland
Fagfólk kom saman og ræddi málin á Hótel Selfossi þann 16. september.

Leiðtogar iðngreinanna hjá Iðunni fræðslusetri fóru um Suðurland í vikunni, heimsóttu fyrirtæki og ræddu við félagsfólk um símenntun og þarfir atvinnulífsins. Ferðinni lauk með viðburðinum Hafðu áhrif á Hótel Selfossi 16. september.

Í Vestmannaeyjum heimsótti hópurinn fjölbreytt fyrirtæki þar sem félagsfólk Iðunnar starfar, meðal annars Laxey, Steina og Olla, Bílaverkstæði Sigurjóns, Gott veitingastað, Einsa kalda, HS Veitur, Eyjablikk og Skipalyftuna.

Bláa hagkerfið setur sterkan svip á atvinnulífið í Eyjum og var áhugavert að sjá hvernig ólíkar iðngreinar tengjast sjávarútvegi og annarri starfsemi. Heimsóknirnar gáfu góða innsýn í þær áskoranir og þarfir sem fyrirtæki og starfsfólk standa frammi fyrir og hvar tækifæri liggja til frekari fræðslu og færniþróunar.

Einnig var komið við hjá Visku símenntunarmiðstöð og FabLab þar sem fer fram frábært starf í fræðslu, stuðningi við nýsköpun og símenntun.

Á Hafðu áhrif á Selfossi var félagsfólki boðið til opins samtals við leiðtoga Iðunnar. Þar gafst tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum og þörfum sem nýtast við áframhaldandi þróun námsframboðs. Einnig var boðið upp á hnitmiðaða fræðslu um gervigreind og leiðbeindi Ari Jónsson frá Goflowtics þátttakendum.

Ferðin er liður í því að styrkja tengsl Iðunnar við félagsfólk og atvinnulíf um land allt og þróa símenntun í takt við þarfir iðngreinanna.

Fleiri fréttir