Fréttir
10. júlí 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Hvert hús hefur sitt fingrafar

Hvert hús hefur sitt fingrafar
Snædís Traustadóttir með þátttakendum í Höfn á námskeiði í Grindarsmíði.

Iðan fræðslusetur stendur reglulega fyrir námskeiðum í samstarfi við Fornverk í Höfnum. Markmið þeirra er að miðla þeirri sérþekkingu sem þarf til að varðveita íslenskan byggingararf en jafnframt sýna fram á að gömul handverkshefð á enn fullt erindi í samtímann.

Námskeið í hefðbundinni Grindarsmíði byggir á aldagömlum byggingaraðferðum og eru haldin undir leiðsögn Snædísar Traustadóttur húsasmíðameistara, sérfræðings í hefðbundinni grindargerð og timburhúsasmíði.

Fjölbreyttur hópur nemenda

„Það er alveg ofboðslega fjölbreyttur hópur fólks sem kemur á námskeiðin,“ segir Snædís. „Þar eru húsasmíðameistarar sem ætla sér að viðhalda torfhúsum eða jafnvel smíða ný. En svo kemur líka venjulegt fólk sem hefur aldrei smíðað neitt áður, fannst námskeiðið einfaldlega áhugavert og langaði að prófa.“

Fornverk í Höfnum

Hún leggur áherslu á að engin fyrri reynsla sé nauðsynleg.

„Það þarf enga þekkingu eða reynslu af smíðum. Verkefnin sem felast í að byggja svona húsgrind eru svo fjölbreytt að allir fá verkefni við hæfi, byggt á þekkingu og getu hvers og eins.“

Hvers vegna kemur fólk á grindarsmíðanámskeið?

„Fólkið sem kemur hefur allt það sameiginlegt að það hefur áhuga á torfhúsum og torfhúsabyggingum. Það veit kannski ekki mikið fyrirfram en er forvitið um hvernig þessi gamla byggingarhefð varð til og hvernig hún virkar.“

Að hennar sögn er námskeiðið ekki aðeins ætlað þeim sem vilja læra smíðar heldur einnig þeim sem vilja skilja menningararfinn sem felst í íslenskum torfhúsum.

Á námskeiðinu vinna þátttakendur að því að reisa húsgrind með hefðbundnum aðferðum.

Grindarsmíði- verklag

„Við gerum timburlása og samsetningar eftir kúnstarinnar reglum. Rekaviður er rifinn með fleygum, tappar og tappagöt hoggin, efni sagað í lengdir með stórviðarsögum og síðan reisum við húsgrindina í lok námskeiðsins.“

Þannig fá þátttakendur að kynnast bæði verkfærunum og þeirri hugsun sem lá að baki smíðunum áður en nútímatæknin tók við.

Nánast ekkert efni fór til spillis

Snædís segir að þar sé margt sem nútímasamfélagið geti tekið sér til fyrirmyndar.

„Þessar gömlu húsgrindur nýta það efni sem er til hverju sinni og hver einasta spýta er nýtt til hins ýtrasta. Það er nánast ekkert efni sem ekki er hægt að nýta í eitthvað.“

Það krefjist þess að handverksmaðurinn lesi í efniviðinn.

„Þú verður að horfa á hvern einasta stokk og sjá hvað einkennir hann og hvernig hann getur nýst. Við erum því stöðugt að meta eiginleika þess timburs sem við vinnum með.“

Húsin segja sögu fólksins sem byggði þau

Gamlar húsgrindur eru ekki aðeins mannvirki heldur einnig heimildir um samfélagið sem reisti þær.

Grindarsmíði námskeið Fornverk í Höfnum

„Við getum lært hvað forfeðrum okkar þótti mikilvægt í húsunum sínum, hvaða verkfæri þeir notuðu og hvaða efni var aðgengilegt á hverjum stað. Allt segir þetta okkur mikið um aðstæður fólksins sem byggði húsin.“

Hvers vegna skiptir máli að varðveita þessa gömlu verkkunnáttu?

„Það er bráðnauðsynlegt að viðhalda hefðbundinni handverksþekkingu ef við viljum halda í gömlu torfhúsin. Það er ekki hægt að viðhalda gömlum húsum ef við vitum ekki hvernig þau voru byggð.“

Hún segir að þegar nútímaaðferðum sé beitt á gömul hús glatist oft þau sérkenni sem gera þau einstök.

„Það má segja að hvert einasta hús hafi sitt ákveðna fingrafar sem handverksfólkið setti á húsið með sinni þekkingu, verkfærum og verkfæranotkun. Ef við virðum ekki það fingrafar og viðhöldum því ekki þá glötum við hluta af mikilvægi húsanna.“

Fleiri fréttir