Skrifstofa Iðunnar verður lokuð frá 13. júlí til og með 3. ágúst
Skrifstofa Iðunnar fræðsluseturs verður lokuð vegna sumarleyfa frá 13. júlí til og með 3. ágúst. Við opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst.
Þó skrifstofan sé lokuð er alltaf hægt að kynna sér fjölbreytt námsframboð Iðunnar á vefnum. Þar er meðal annars að finna úrval vefnámskeiða sem hægt er að sækja hvenær sem hentar. Við minnum félagsfólk okkar á afmælisgjöf til þeirra. Í tilefni af 20 ára afmæli Iðunnar fær félagsfólk að gjöf gjafabréf á vefnámskeið að eigin vali.
Við óskum ykkur gleðilegs sumars og hlökkum til að taka á móti ykkur á ný í ágúst.
Kynntu þér námskeið Iðunnar á haustönn 2026: