Fréttir
07. október 2026

Þróun hæfni þvert á landamæri

Þróun hæfni þvert á landamæri

Fulltrúar Iðunnar taka þátt í evrópsku samtali um framtíð starfsnáms og símenntunar.

Fulltrúar Iðunnar fræðsluseturs eru á leið á Towards the European Apprenticeship Area, evrópskan viðburð þar sem sjónum verður beint að samstarfi um starfsnám, þjálfun fagfólks og þróun hæfni þvert á landamæri.

Á viðburðinum koma saman fulltrúar frá ólíkum löndum Evrópu til að ræða hvernig efla megi gæði starfsnáms, símenntun, styrkja samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila og skapa betri leiðir til að gera hæfni sýnilega og viðurkennda á milli landa.

Helen Williamsdóttir Gray, leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni fræðslusetri, tekur þátt fyrir hönd Iðunnar og miðlar þar meðal annars reynslu úr evrópsku samstarfsverkefnunum EQAMOB og MCEU.

Unnið að gæðum í alþjóðlegu starfsnámi

Í EQAMOB-verkefninu hefur verið unnið að gæðum í alþjóðlegu starfsnámi og þróun gæðamerkis fyrir fyrirtæki sem taka á móti eða senda nema í starfsþjálfun. Þar er meðal annars horft til móttöku nemenda, leiðsagnar og handleiðslu, tengingar verkefna við námsmarkmið og þess að vinnuumhverfið sé öruggt og styðjandi.

„Það er ekki nóg að fyrirtæki taki einfaldlega á móti nema. Við viljum að námsupplifunin sé skipulögð og innihaldsrík, að nemar fái góða leiðsögn og að verkefnin tengist bæði starfsgreininni  og þeim námsmarkmiðum sem lagt var upp með,“ segir Helen.

Gæðamerkið er þannig leið til að viðurkenna fyrirtæki sem sýna fram á  skuldbindingu við gæði náms- og þjálfunarverkefna.

Frá upptökum hjá Velti, sem hefur nýtt sér starfsmannaskipti á vegum Erasmus+. Starfsmannaskipti skapa tækifæri til að sækja nýja þekkingu og reynslu út fyrir landsteinana og miðla henni áfram á vinnustaðnum.

Hæfni sem er skiljanleg yfir landamæri

Í MCEU-verkefninu hefur áherslan meðal annars verið á þróun örnámskeiða og örviðurkenninga fyrir ferðaþjónustuna, sérstaklega á sviði grænnar og stafrænnar hæfni. Örnámskeið verkefnisins hafa verið prófuð með yfir 600 þátttakendum  og kannanir þess náð til yfir 8.000 einstaklinga á Íslandi og í Evrópu.

Reynslan úr verkefninu hefur sýnt að það eitt að bjóða upp á örviðurkenningar er ekki nóg. Bæði námsfólk og atvinnurekendur þurfa að skilja hvað þær þýða og hvaða hæfni þær staðfesta.

„Helsta áskorunin er að tryggja að örviðurkenningar séu skýrar, njóti trausts og hafi skilgreint gildi á vinnumarkaði. Þær þurfa að segja atvinnurekanda með einföldum hætti hvaða hæfni einstaklingurinn hefur öðlast.“

Helen segir þetta jafnframt eitt þeirra atriða sem hún vilji sjá meiri samvinnu um á evrópskum vettvangi.

„Ég vil sjá öflugra samevrópskt átak til að þróa örviðurkenningar sem eru traustar, viðurkenndar og færanlegar milli landa. Ef okkur tekst að gera hæfni sýnilegri og auðskiljanlegri getum við bæði aukið gæði alþjóðlegs starfsnáms og auðveldað fólki að nýta þekkingu sína og reynslu á evrópskum vinnumarkaði.“

Þátttaka Iðunnar í Towards the European Apprenticeship Area er hluti af áframhaldandi alþjóðlegu samstarfi Iðunnar og þeirri vinnu að efla gæði símenntunar, starfsnáms, styrkja tengsl við atvinnulífið og skapa fleiri tækifæri til náms og þjálfunar yfir landamæri.

Fleiri fréttir