Fréttir
29. apríl 2026
Vilborg Helga Harðardóttir skrifar

Lykill að sterkri framtíð iðnaðarins

Lykill að sterkri framtíð iðnaðarins

Nú eru stór tímamót, á þessu ári stendur Iðan á merkum tímamótum og fagnar 20 ára afmæli. Á þessum tveimur áratugum höfum við byggt upp öflugt fræðslusetur sem hefur þróast í takt við þarfir iðnaðarins og samfélagsins alls. 

Fjölbreytni í fræðslustarfi Iðunnar er mikið og hefur farið vaxandi, bæði þegar kemur að inntaki og miðlunarleiðum. Þessi þróun er ekki tilviljun, heldur bein afleiðing af breyttum kröfum vinnumarkaðarins og hraðri tækniþróun. Markmið okkar er einnig að mæta fólki þar sem það er statt og gera breiðum hópi kleift að auka þekkingu sína og hæfni með þeim leiðum sem henta hverjum og einum.

Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt. Á síðasta ári buðum við upp á um 500 námskeið og voru þátttakendur tæplega 5.000 talsins, en það er um 15% aukning frá árinu á undan. Þessar tölur segja sína sögu; þörfin fyrir símenntun er meiri en nokkru sinni fyrr.

Það er ábyrgð okkar í Iðunni að bregðast við þessari þörf. Við þurfum stöðugt að hlusta á atvinnulífið, fylgjast með þróuninni og tryggja að fræðslan sem við bjóðum upp á nýtist fólki í starfi. Hvort sem um er að ræða nýja tækni, breyttar kröfur eða nýjar áskoranir, þá er okkar markmið að vera skrefi á undan.

Starfsemi Iðunnar er víðtæk. Auk námskeiða sinnum við raunfærnimati, náms- og starfsráðgjöf og höldum utan um sveinspróf í 29 iðngreinum. Þörfin fyrir iðnmenntaða í samfélaginu er mikil og starfstækifærin næg. Því er ánægjulegt að ásókn í iðnmenntun hefur farið vaxandi undanfarin ár. Raunfærnimatið hefur einnig reynst öflugt tæki sem hefur opnað mörgum leið til að fá færni sína metna, stytt leiðina að sveinsprófi og þar með að starfsréttindum.

Alþjóðlegt samstarf er einnig lykilþáttur í okkar starfi. Með því að sækja þekkingu út fyrir landsteinana og taka þátt í alþjóðlegum verkefnum stuðlum við að því að fræðslan hér heima standist samanburð og sé í takt við það besta sem gerist erlendis.

Þegar við horfum fram á veginn er eitt ljóst; símenntun verður sífellt mikilvægari. Hún er forsenda þess að viðhalda hæfni, takast á við breytingar og tryggja samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Hún er líka lykill að persónulegri þróun hvers og eins.

Ég vil því sérstaklega hvetja ykkur til að kynna ykkur framboðið okkar og nýta þau tækifæri sem þar felast. Ekki síst vil ég minna á að nýta afmælisgjöfina til ykkar, því hún er til þess ætluð að styðja ykkur í að styrkja stöðu ykkar á vinnumarkaði og færa ykkur nýja þekkingu. 

Við hjá Iðunni munum halda áfram að þróa okkar starf og styðja ykkur í að efla ykkar færni. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja að við séum tilbúin fyrir framtíðina.

Ég óska ykkur velgengni í námi og starfi,

Vilborg Helga Harðardóttir

Fleiri fréttir