„Við erum sannfærð um að mikilvægur liður í að svara þörfum félagsfólks, bæði núverandi og framtíðarþörfum, sé að móta okkar þjónustu og fræðslu í gegnum beint samtal við félagsfólk og fyrirtæki í iðnaði. Þess vegna erum við hér í dag, til að eiga samtalið við ykkur,“ sagði Harpa Björg Guðfinnsdóttir, deildarstjóri Þróunar og þekkingar hjá Iðunni fræðslusetri á fræðslufundi með félagsfólki á Reyðarfirði.
Yfirskrift fundarins var Hafðu áhrif og er liður í áframhaldandi vinnu Iðunnar við að styrkja tengsl við atvinnulífið um land allt, kynna námsframboð og stuðla að aukinni þátttöku í símenntun með því að mæta þörfum hvers landshluta.
Fundurinn hófst á kynningu á starfsemi og fjölbreyttri þjónustu hjá Iðunni fræðslusetri. Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir kynnti starfsemi Austurbrúar sem hefur unnið í góðu samstarfi við Iðuna í að kynna möguleika á raunfærnimati auk þess að greina fræðsluþarfir í fyrirtækjum.
Í kjölfarið flutti Marín Jónsdóttir frá Almannarómi erindi um gervigreind fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Einnig var sýnt viðtal við Ingvar Guðmundsson, húsasmíðameistara hjá Launafli, sem varpaði ljósi á hversu miklu máli markviss fræðsla skiptir í heimabyggð.
Eftir lifandi umræður og hópavinnu, þar sem þarfir og tækifæri í símenntun í iðnaði á svæðinu voru kortlögð, gátu gestir spjallað saman yfir pizzu og bjór.
Félagsfólk óskaði eftir fleiri staðbundnum námskeiðum í héraði og á Norðurlandi en samgöngur og truflanir á þeim eru stór hindrun fyrir heimamenn í að sækja sér sí- og endurmenntun. Þá var rætt um erfitt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi og skort á fagfólki á Austurlandi. Mikill uppgangur og gróska sé í atvinnulífinu sem þurfi að styðja markvisst við.
„Við þurfum fleiri hendur,“ sagði Markús Eyþórsson framkvæmdastjóri og eigandi Bílaverkstæðis Austurlands sem sagði fyrirsjáanlegan skort á iðnmenntuðu fagfólki á Austurlandi í mörgum iðngreinum.