Hlaðvörp - Tækifæri í Evrópu
08. júlí 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Nýorðinn 18 ára á Michelin-veitingastað

Nýorðinn 18 ára á Michelin-veitingastað
Starfsþjálfun erlendis með Erasmus+ gefur iðnnemum einstakt tækifæri til að kynnast nýjum vinnuaðferðum, efla faglega færni og öðlast reynslu sem nýtist þeim áfram á starfsferlinum. Fyrir Baldvin Mána varð mánuðurinn á MOTA dýrmæt fagleg reynsla.

Baldvin Máni Halldórsson var nýorðinn 18 ára þegar hann lagði af stað í mánaðar starfsþjálfun á Michelin-veitingastaðnum MOTA á Sjálandi í Danmörku.

Aðeins tveimur dögum eftir 18 ára afmælið sitt hóf hann störf á veitingastaðnum, en nemar þurfa að hafa náð þeim aldri til að geta sótt um Erasmus+ styrk fyrir starfsþjálfun erlendis á vegum Iðunnar.

Þrátt fyrir ungan aldur var Baldvin Máni vel undir verkefnið búinn. Frá því í janúar hefur hann verið í námi og starfsþjálfun á Michelin-veitingastaðnum Moss við Bláa lónið og því vanur því að vinna í metnaðarfullu og krefjandi umhverfi.

Á MOTA fékk hann hins vegar tækifæri til að kynnast nýrri nálgun, ólíku vinnuumhverfi og öðruvísi matarmenningu.

„Það sem hvatti mig til þess að fara í þjálfun erlendis var aðallega að sjá og læra nýja hluti um matreiðslu og mig langaði líka að prófa að vinna annars staðar heldur en á Íslandi,“ segir Baldvin Máni sem fékk aldeilis að kynnast allt öðru og afslappaðra andrúmslofti í sveitinni á Sjálandi.

Baldvin Máni- mynd úr einkasafni

„Það var komið aðeins öðruvísi fram við mann þarna úti. Allir voru miklu afslappaðri og tóku sér meiri tíma í að sýna manni hlutina. Mér finnst vera mjög hratt tempó hérna heima, sem er endilega ekkert slæmt, bara öðruvísi.“

Þrifið frá gólfi og upp í loft á hverjum degi

Eitt af því sem kom honum mest á óvart voru vinnubrögðin þegar kom að þrifum og skipulagi.

„Mér fannst rosalega áhugavert að úti gera þau það sem við myndum kalla „sunnudagsþrif“ á hverjum degi. Allar hillur teknar af veggjum og það er allt þrifið frá gólfi upp í loft.“

Þessi mikla áhersla á hreinlæti og nákvæmni endurspeglaði þá fullkomnunaráráttu sem einkennir veitingastaðinn.

Baldvin Máni- mynd úr einkasafni 3

Starfsfólkið tínir blóm í réttina

Starfsþjálfunin hafði einnig áhrif á hvernig Baldvin Máni horfir á hráefni og matreiðslu.

Á MOTA er lögð rík áhersla á að nýta það sem náttúran hefur upp á að bjóða og starfsfólkið fór reglulega út að tína blóm og jurtir til eldamennskunnar.

„Úti á MOTA elda þeir mjög mikið með það sem er að finna í umhverfinu. Við fórum nokkrum sinnum í göngutúr að leita að fallegum blómum til þess að nota fyrir kvöldið og það hjálpaði mér að fatta hversu mikið er hægt að gera með hráefni sem maður hefur oftast hunsað.“

Þegar hann er beðinn um að lýsa upplifuninni með þremur orðum stendur ekki á svarinu: Blóm. Míkrójurtir. Fullkomnun.

Baldvin Máni- einkasafn 2

Mælir eindregið með Erasmus+

Baldvin Máni hvetur aðra nema sem hafa áhuga á að þróast í sínu fagi til að nýta sér tækifærið.

„Mjög sniðugt og lærdómsríkt fyrir þá sem eru opin fyrir nýjum hugmyndum og vilja víkka sjóndeildarhringinn sinn í sínu fagi.“

Baldvin Máni- mynd úr einkasafni 4


Viltu kynna þér möguleikana? Sjáðu meira um Erasmus+ samstarf Iðunnar fyrir ungt fólk í leit að starfsnámi og faglegri þjálfun.

Fleiri fréttir