Nýsveinar í sex iðngreinum tóku á móti sveinsbréfum
85 nýsveinar fengu sveinsbréf sín afhent á Hilton Nordica í gær 28.apríl og fögnuðu áfanganum.
Fjölskylda og vinir fögnuðu með nýsveinum úr sex iðngreinum.
• Bifvélavirkjun – 20
• Hársnyrtiiðn – 21
• Vélvirkjun – 25
• Rennismíði – 6
• Stálsmíði – 6
• Snyrtifræði – 7
Veittar voru viðurkenningar fyrir bestan árangur:
Fyrir bestan árangur í rennismíði hlaut Ólafur Steinn Jónsson viðurkenningu.
Meistari: Jökull Guðmundsson
Fyrirtæki: Marel Iceland ehf.
Fyrir bestan árangur í vélvirkjun hlaut Árni Rafn Jakobsson viðurkenningu.
Meistari: Jón Trausti Guðmundsson
Fyrirtæki: Héðinn hf.
Fyrir bestan árangur í bifvélavirkjun hlaut Eyjólfur Már Einarsson viðurkenningu.
Meistari: Viðar Gaðarsson
Fyrirtæki: TK bílar ehf.
Dagskránni lauk með léttu og skemmtilegu uppistandi Birnu Rúnar Eiríksdóttur.
Iðan óskar öllum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni. Hér að neðan má sjá myndir frá athöfninni.