Fréttir
13. október 2026
Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar

Öflugt starfsár gert upp á aðalfundi Iðunnar

Öflugt starfsár gert upp á aðalfundi Iðunnar
Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs.

„Ég er sannfærð um að sterk framtíð iðnaðarins byggi á hæfu fólki, fagmennsku og vilja til að þróast. Það er hlutverk Iðunnar að styðja við þá vegferð,“ segir Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar, í ávarpi sínu í ársskýrslu Iðunnar fræðsluseturs sem var dreift á aðalfundi 8. október sl.

Á fundinum var farið yfir starfsemi og árangur liðins starfsárs, sem einkenndist af öflugu fræðslustarfi, stefnumótun og tímamótum í sögu Iðunnar, sem fagnar 20 ára afmæli á árinu.

Í ávarpi sínu leggur Vilborg áherslu á mikilvægi nýrrar stefnu Iðunnar, sem mótuð var með virkri þátttöku stjórnar og starfsfólks.

„Stefnuvinnan gekk afar vel, ný stefna skapar aukinn skýrleika í starfseminni og verður okkur mikilvægt leiðarljós bæði í daglegum störfum og við stærri ákvarðanir.“

Á starfsárinu hélt Iðan rúmlega 400 námskeið og sóttu yfir 4.000 einstaklingar fræðslu hjá Iðunni. Mikil áhersla var lögð á að fræðsluframboðið mætti þörfum atvinnulífsins, auk þess sem gæðastarf var eflt og alþjóðlegt samstarf áfram í öndvegi.

Vilborg horfir björtum augum til framtíðar og þeirra tækifæra sem felast í áframhaldandi þróun fræðslu fyrir íslenskan iðnað.

„Nú þegar við siglum inn í nýjan áratug í sögu Iðunnar er ég í senn þakklát, bjartsýn og spennt.“

Fram undan er innleiðing nýrrar stefnu, áframhaldandi uppbygging gæðastarfs og þróun fræðslu sem skapar raunveruleg verðmæti fyrir íslenskan iðnað.

Fleiri fréttir