Í tilefni af 20 ára afmæli Iðunnar bjóðum við öllu félagsfólki að koma og fagna með okkur á skemmtilegri fjölskylduhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 16. ágúst nk. Stórstjörnurnar Jón Jónsson, Ragga Gísla, KK og VÆB mæta til að halda uppi stemningunni.
Við hvetjum gesti til að mæta snemma og njóta alls þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða.
Hátíðin hefst kl. 12:00 þegar Leikhópurinn Lotta mætir á svæðið með skemmtilegt atriði á sviði og gengur svo um garðinn. Yngstu gestirnir vilja alveg örugglega ekki missa af þessu.
Klukkan 13:00 hefst dagskrá á sviðinu þar sem Jón Jónsson, KK, Ragga Gísla og VÆB koma fram.
Milli 12:00 og 15:00 verður ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna:
Við hlökkum til að sjá ykkur á afmælishátíð Iðunnar! Skráning fer fram hér.