Vilt þú hanna jólakort Iðunnar í ár?
Iðan leitar að skapandi félagsmanni í prent- og miðlunargreinum til að hanna jólakort ársins 2026.
Við leitum að skapandi félagsmanni í prent- og miðlunargreinum sem hefur áhuga á að hanna jólakort Iðunnar fræðsluseturs í ár!
Jólakortið verður bæði prentað og kvikað fyrir samfélagsmiðla og auglýsingaskjái og því kjörið tækifæri til að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín.
Í fyrra var það prentsmiðurinn Hulda Sól Magneudóttir sem hannaði jólakortið okkar og nú viljum við leyfa fleirum að spreyta sig.
Greiðsla fyrir verkefnið er 150.000 kr.
Frestur til að senda inn örstutta kynningu á þér og hugmynd að kortinu er 16. nóvember.
Lokateikning þarf að vera klár til framleiðslu 5. desember.
Fleiri fréttir